Fréttir

Fréttamynd

„Þessi samningur var full­kom­lega óboðlegur“

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samningin ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Krapvélar í yfir­vinnu í góða veðrinu

Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins.

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“

Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna.

Innlent
Fréttamynd

Til­gangs­laust stríð og æfir hjólabúar

Við förum yfir stöðuna í Íran en forsætisráðherra Pakistans sagði í gær að lokaorðalag friðarsáttmála hefði verið samþykkt af forsvarsmönnum Bandaríkjanna og Íran. Samkvæmt alþjóðastjórnmálafræðingi skila átökin litlu sem engu. Friður sé langt frá því að vera fastur í hendi.

Innlent
Fréttamynd

Hlað­varparar hrósa sigri: „Logi er greini­lega nettur gæi“

Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott.

Innlent
Fréttamynd

Sólin sleikir lands­menn

Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 

Veður
Fréttamynd

Húð­læknir bregst við brúnkutískunni

Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram bongó í kortunum og nú um allt land

Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu.

Veður
Fréttamynd

„Gegnum­gangandi bongó um helgina“

Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.

Veður
Fréttamynd

Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki al­veg

Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu.

Innlent
Fréttamynd

Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt

Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti.

Innlent