Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018. Innlent 13.6.2026 15:14
„Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook. Innlent 13.6.2026 14:50
Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. Innlent 13.6.2026 14:40
Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Innlent 13.6.2026 12:12
„Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Skipstjóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar, segir ítrekaðar æfingar um borð lífsnauðsynlegar og þær hafi skilað sér eins og best var á kosið í gær þegar eldur kom upp um borð. Stór og mikill eldur hafi blossað upp í vélarrúmi skipsins og reykur hafi fyllt afturskipið á örskotsstundu. Innlent 13.6.2026 10:58
Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott. Innlent 13.6.2026 10:00
Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. Veður 13.6.2026 09:57
Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Rúmlega 2600 kandítatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Hægt er að fylgjast með athöfnunum í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 13.6.2026 09:47
Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina. Innlent 13.6.2026 07:55
Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. Innlent 13.6.2026 07:46
Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu. Veður 13.6.2026 07:32
Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnbanns Bandaríkjanna í Íran. Erlent 12.6.2026 22:26
Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips Síldarvinnslunnar, út fyrir ströndum Færeyja í dag og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt björgunarskip kom til bjargar. Innlent 12.6.2026 20:41
„Gegnumgangandi bongó um helgina“ Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun. Veður 12.6.2026 20:09
Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Bíl var ekið á miklum hraða í hlið húss í Lærdal í Sogni í vestanverðum Noregi síðdegis í dag með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi létust. Erlent 12.6.2026 19:40
Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu. Innlent 12.6.2026 19:26
Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Fjármálaáætlun var tekin til síðari umræðu á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan fer fram á að umræðum verði frestað meðan tölur eru endurreiknaðar vegna breyttra horfa í efnahagsmálum. Meirihlutinn leggur áherslu á að fjárlög næsta árs verði hallalaus, skilvirkni í ríkisrekstri verði meiri og hagvöxtur á mann aukinn. Innlent 12.6.2026 19:10
Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Bandaríkin og Íran eru sögð hafa komist að friðarsamkomulagi. Forsætisráðherra Pakistans tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum en leiðtogar beggja vegna borðsins hafa enn ekki tjáð sig um yfirlýsinguna. Innlent 12.6.2026 18:31
Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir „Við getum staðfest að samþykkt lokaorðalag friðarsamkomulag liggur fyrir,“ segir Shehbaz Sharif forsætisráðherra Pakistan í færslu á samfélagsmiðlum. Erlent 12.6.2026 18:19
Njósnarar enn í lögsögunni Rússneskt njósnaskip siglir enn um íslenska lögsögu og hefur nú gert það í um viku. Innlent 12.6.2026 16:54
Hitinn náði yfir tuttugu stig Hitinn mældist yfir tuttugu stig á Korpu í Reykjavík og Tálknafirði í dag. Veður 12.6.2026 16:32
Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti. Innlent 12.6.2026 16:00
„Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn. Innlent 12.6.2026 15:56
Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk. Innlent 12.6.2026 15:02
Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. Innlent 12.6.2026 14:48