Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnbanns Bandaríkjanna í Íran. Erlent 12.6.2026 22:26
Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips Síldarvinnslunnar, út fyrir ströndum Færeyja í dag og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt björgunarskip kom til bjargar. Innlent 12.6.2026 20:41
„Gegnumgangandi bongó um helgina“ Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun. Veður 12.6.2026 20:09
Hitinn náði yfir tuttugu stig Hitinn mældist yfir tuttugu stig á Korpu í Reykjavík og Tálknafirði í dag. Veður 12.6.2026 16:32
Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti. Innlent 12.6.2026 16:00
„Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn. Innlent 12.6.2026 15:56
Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk. Innlent 12.6.2026 15:02
Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. Innlent 12.6.2026 14:48
Kviknaði í raftæki Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ræst út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Innlent 12.6.2026 14:38
Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. Innlent 12.6.2026 14:33
Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Tvær umdeildar skýrslur um hið svokallaða Havana-heilkenni hafa verið dregnar til baka. Tulsi Gabbard, fráfarandi yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, segir skýrslurnar ekki hafa staðist greiningarstaðla en þar var því haldið fram að hin dularfullu áratugsgömlu veikindi tengdust ekki aðgerðum eða árásum óvina. Erlent 12.6.2026 14:26
Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn Jóns Atla Magnússonar um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Eiginkona hans segir baráttu þeirra þó ekki lokið. Um sé að ræða réttlætismál fyrir alla sem greinast með þetta banvæna krabbamein. Innlent 12.6.2026 13:53
Facebook lá niðri Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri í um klukkustund síðdegis í dag, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector. Erlent 12.6.2026 13:50
Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Íbúar Ísafjarðarbæjar eiga von á tveimur skemmtiferðaskipum í dag með allt að 8000 farþegum. Annað skipanna er það stærsta sem hefur komið til hafnar á Ísafirði en skipið kom þangað í sína fyrstu heimsókn árið 2023. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjölda bókana vera að taka við sér eftir lækkun innviðagjalds. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund ferðamönnum í sumar. Innlent 12.6.2026 13:30
Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af um 3900 fermetra landi í Gufunesi. Tveir mánuðir eru síðan að samningurinn var undirritaður. Innlent 12.6.2026 13:21
Eldur kviknaði í Toppstöðinni Slökkviliðsmenn voru ræstir út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Þeir hafa slökkt eldinn. Innlent 12.6.2026 13:20
„Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Veðrið mun leika við landsmenn víðast hvar um helgina en í morgun mældist hitinn á Patreksfirði sautján stig. Veðurfræðingur segir engum blöðum um það að fletta að sumarið sé komið og forstöðumaður sundlaugar á von á að gestir leggi undir sig sólbekkina í dag. Innlent 12.6.2026 13:16
Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Tæplega þrjátíu manns komu saman á Austurvelli í hádeginu til að mótmæla samráðsleysi stjórnvalda við Grindvíkinga. Þau telja skilyrði hollvinasamnings Þórkötlu óboðleg. Innlent 12.6.2026 12:46
Kaninn pakkar saman í Evrópu Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tilkynnt bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu að til standi að fækka töluvert herþotum, flugvélum og herskipum í Evrópu. Um er að ræða hersveitir sem tekið hafa þátt í aðgerðum NATO í gegnum áratugina og stendur meðal annars til að fækka orrustuþotum í Evrópu um þriðjung. Erlent 12.6.2026 12:44
Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. Innlent 12.6.2026 12:02
Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Landsréttur sýknaði föður af ákæru um að hafa reynt að reka tungu sína upp í dóttur sína. Maðurinn hafði áður verið sýknaður af öðrum ákæruliðum um kynferðisbrot gegn stúlkunni sem var sjö ára þegar atvikið átti sér stað. Innlent 12.6.2026 11:52
Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Í hádegisfréttum heyrum við í formönnum þingflokka á Alþingi en seint í gærkvöldi náðist samkomulag um þingfrestun í sumar. Innlent 12.6.2026 11:37
Borgin afþakkar risaeðlubein Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður. Innlent 12.6.2026 10:45
Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum. Erlent 12.6.2026 10:32