Fréttir

Fréttamynd

Lokað vegna skorts á starfs­leyfi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Af­leiðingarnar muni vara í ein­hver ár jafn­vel“

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 

Erlent
Fréttamynd

Sólin sleikir lands­menn

Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 

Veður
Fréttamynd

Húð­læknir bregst við brúnkutískunni

Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram bongó í kortunum og nú um allt land

Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu.

Veður
Fréttamynd

„Gegnum­gangandi bongó um helgina“

Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.

Veður
Fréttamynd

Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki al­veg

Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu.

Innlent
Fréttamynd

Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt

Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti.

Innlent
Fréttamynd

„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn.

Innlent
Fréttamynd

Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin

Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk.

Innlent
Fréttamynd

Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna

Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs.

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í raf­tæki

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ræst út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi

Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. 

Innlent