„Þessi samningur var fullkomlega óboðlegur“ Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samninginn ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar. Innlent 13.6.2026 17:20
Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins. Innlent 13.6.2026 16:35
Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Bandarísk stjórnvöld hafa gert tæknirisanum Anthropic að loka fyrir aðgang erlendra ríkisborgara að nýjasta gervigreindarlíkani Claude. Íslenskir notendur hafa ekki getað notað líkanið síðan í gær. Innlent 13.6.2026 15:29
Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári og í dag gefst almenningi einstakt tækifæri til að skoða búnað gæslunnar. Gefst fólki meðal annars kostur á að skoða þyrlur og sprengjuleitarróbóta gæslunnar í návígi. Innlent 13.6.2026 12:18
Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna. Innlent 13.6.2026 12:12
Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar Við förum yfir stöðuna í Íran en forsætisráðherra Pakistans sagði í gær að lokaorðalag friðarsáttmála hefði verið samþykkt af forsvarsmönnum Bandaríkjanna og Íran. Samkvæmt alþjóðastjórnmálafræðingi skila átökin litlu sem engu. Friður sé langt frá því að vera fastur í hendi. Innlent 13.6.2026 11:42
„Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Skipstjóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar, segir ítrekaðar æfingar um borð lífsnauðsynlegar og þær hafi skilað sér eins og best var á kosið í gær þegar eldur kom upp um borð. Stór og mikill eldur hafi blossað upp í vélarrúmi skipsins og reykur hafi fyllt afturskipið á örskotsstundu. Innlent 13.6.2026 10:58
Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott. Innlent 13.6.2026 10:00
Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. Veður 13.6.2026 09:57
Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Rúmlega 2600 kandítatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Hægt er að fylgjast með athöfnunum í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 13.6.2026 09:47
Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina. Innlent 13.6.2026 07:55
Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. Innlent 13.6.2026 07:46
Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu. Veður 13.6.2026 07:32
Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnbanns Bandaríkjanna í Íran. Erlent 12.6.2026 22:26
Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips Síldarvinnslunnar, út fyrir ströndum Færeyja í dag og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt björgunarskip kom til bjargar. Innlent 12.6.2026 20:41
„Gegnumgangandi bongó um helgina“ Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun. Veður 12.6.2026 20:09
Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Bíl var ekið á miklum hraða í hlið húss í Lærdal í Sogni í vestanverðum Noregi síðdegis í dag með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi létust. Erlent 12.6.2026 19:40
Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Það er ekki nóg að keyra á sextíu kílómetra hraða á Sæbraut til að ná lenda aldrei á rauðu ljósi, eða ná hinni svokölluðu grænu bylgju. Það er ekki einu sinni endilega nóg að keyra á 58 kílómetra hraða, þótt ljósastýringin sé miðuð við þann hraða. Þetta kom í ljós þegar fréttastofa prófaði hina aldagömlu Sæbrautarkenningu. Innlent 12.6.2026 19:26
Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Fjármálaáætlun var tekin til síðari umræðu á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan fer fram á að umræðum verði frestað meðan tölur eru endurreiknaðar vegna breyttra horfa í efnahagsmálum. Meirihlutinn leggur áherslu á að fjárlög næsta árs verði hallalaus, skilvirkni í ríkisrekstri verði meiri og hagvöxtur á mann aukinn. Innlent 12.6.2026 19:10
Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Bandaríkin og Íran eru sögð hafa komist að friðarsamkomulagi. Forsætisráðherra Pakistans tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum en leiðtogar beggja vegna borðsins hafa enn ekki tjáð sig um yfirlýsinguna. Innlent 12.6.2026 18:31
Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir „Við getum staðfest að samþykkt lokaorðalag friðarsamkomulag liggur fyrir,“ segir Shehbaz Sharif forsætisráðherra Pakistan í færslu á samfélagsmiðlum. Erlent 12.6.2026 18:19
Njósnarar enn í lögsögunni Rússneskt njósnaskip siglir enn um íslenska lögsögu og hefur nú gert það í um viku. Innlent 12.6.2026 16:54
Hitinn náði yfir tuttugu stig Hitinn mældist yfir tuttugu stig á Korpu í Reykjavík og Tálknafirði í dag. Veður 12.6.2026 16:32
Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti. Innlent 12.6.2026 16:00