Aflýsir kröftugu árásunum Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur aflýst fyrirhugðum árásum á Íran sem áttu að fara fram í kvöld. Erlent 11.6.2026 18:46
Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim. Innlent 11.6.2026 18:12
Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Ingólfur Samúelsson var meðlimur í sex manna hópi sem vísað var út úr flugvél Transavia í morgun vegna ölvunar. Hann neitar því að einhver í hópnum hafi verið drukkinn og hyggst leita réttar síns. Innlent 11.6.2026 18:07
Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum. Erlent 11.6.2026 15:18
Hótaði að beita skotvopni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki haft uppi á manni sem grunaður er um að hafa hótað starfsfólki Hagkaupa í dag. Lögregla telur sig vita hver maðurinn er en hefur ekki náð tali af honum. Innlent 11.6.2026 14:29
Finnur ekki fyrir sársauka Þrír íslenskir bræður hafa greinst með meðfætt sársaukaleysi og er sjúkrasaga eins þeirra rakin í nýjasta Læknablaðinu. Þar kemur fram að sá hafi meðal annars bitið fremst af tungunni í æsku án þess að finna fyrir því og upplifi hvassa hluti meira eins og snertingu. Innlent 11.6.2026 14:13
Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. Innlent 11.6.2026 13:14
Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Æðsti yfirmaður lögreglunnar í Úkraínu segir útsendara frá leyniþjónustum Rússa fá úkraínskar táningsstúlkur og ungar konur til að myrða úkraínska hermenn. Stúlkunum er lofað að þær fái peninga fyrir að fylgja leiðbeiningum og eitra fyrir mönnum sem þær mæla sér jafnvel móts við gegnum internetið. Erlent 11.6.2026 13:01
Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela. Erlent 11.6.2026 12:59
MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá tveimur málum gegn Íslandi. Annað varðar ákæru í kynferðisbrotamáli sem ekki var gefin út og hitt félagafrelsi lyfjafræðings. Innlent 11.6.2026 12:43
Flekahreyfingar innan Samfylkingar Hópur félagsmanna Samfylkingar mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og lýsir krappri hægri beygju sem hafi ekki verið rædd á vettvangi flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Mikil sóknarfæri séu á vinstri væng stjórnmálanna. Innlent 11.6.2026 12:22
Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í Reykjavík í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu vegna málsins. Innlent 11.6.2026 12:01
Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Innlent 11.6.2026 11:44
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa Samtaka iðnaðarins um matvælaverð hér á landi en Samkeppniseftirlitið segir Íslendinga greiða 55 prósent meira fyrir matarkörfuna en íbúar ESB. Innlent 11.6.2026 11:39
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Varnarmálaráðherra Breta segir af sér John Healey, varnarmálaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér og segist vera ósammála forsætisráðherranum Keir Starmer um fjárveitingar til hersins. Erlent 11.6.2026 11:35
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafa látist af völdum hita í Evrópu á undanförnum fjórum árum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Hún telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest andlátanna. Erlent 11.6.2026 11:34
Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar nýs bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Hann tók einnig þátt í kosningabaráttu Vilhjálms. Innlent 11.6.2026 11:26
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Sænska ríkisstjórnin hefur dregið til baka frumvarp sem hefði lækkað sakhæfisaldur niður í þrettán ár þar sem verulegar líkur voru á að það yrði fellt á þingi. Í staðinn ætlar hún að leggja fram nýtt frumvarp um að lækka aldurinn í fjórtán ár í sumar. Erlent 11.6.2026 11:09
Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Vinir Hamraborgar segja það sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað nafn sitt undir undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að endurskoða áform um þéttingu og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs. Einn þeirra segir draumatölu undirskrifta vera 2500 en þegar þetta er skrifað hafa 187 skrifað undir. Innlent 11.6.2026 10:47
Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar. Innlent 11.6.2026 10:09
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil. Erlent 11.6.2026 10:01
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Innlent 11.6.2026 10:00
Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins fundar fimmtudaginn 11. júní um verðbólguna, verðlag og laun. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Eggið eða hænan, hefst klukkan 08:30 og verður í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 11.6.2026 08:02