Fréttir

Fréttamynd

Hafnar kreddum um verð­bólguna

Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stefnir í uppbótartíma

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Bretar sam­þykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu

Yfirvöld í Bretlandi eru þau fyrstu í Evrópu til að samþykkja sölu þyngdarlosunarlyfsins Wegovy í pilluformi. Lyfið er framleitt af danska fyrirtækinu Novo Nordisk en hingað til hafa neytendur þurft að sprauta því í sig.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásar­maður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mann­réttindum minni­hluta­hópa

Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Gera úkraínsk ung­menni að launmorðingjum

Æðsti yfirmaður lögreglunnar í Úkraínu segir útsendara frá leyniþjónustum Rússa fá úkraínskar táningsstúlkur og ungar konur til að myrða úkraínska hermenn. Stúlkunum er lofað að þær fái peninga fyrir að fylgja leiðbeiningum og eitra fyrir mönnum sem þær mæla sér jafnvel móts við gegnum internetið.

Erlent
Fréttamynd

Boðar harðar á­rásir og her­nám Kharg-eyju

Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela.

Erlent
Fréttamynd

Flekahreyfingar innan Sam­fylkingar

Hópur félagsmanna Samfylkingar mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og lýsir krappri hægri beygju sem hafi ekki verið rædd á vettvangi flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Mikil sóknarfæri séu á vinstri væng stjórnmálanna.

Innlent
Fréttamynd

Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar

Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í Reykjavík í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Innlent
Fréttamynd

Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár

Sænska ríkisstjórnin hefur dregið til baka frumvarp sem hefði lækkað sakhæfisaldur niður í þrettán ár þar sem verulegar líkur voru á að það yrði fellt á þingi. Í staðinn ætlar hún að leggja fram nýtt frumvarp um að lækka aldurinn í fjórtán ár í sumar.

Erlent
Fréttamynd

Sorg­legt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann

Vinir Hamraborgar segja það sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað nafn sitt undir undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að endurskoða áform um þéttingu og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs. Einn þeirra segir draumatölu undirskrifta vera 2500 en þegar þetta er skrifað hafa 187 skrifað undir.

Innlent
Fréttamynd

Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil.

Erlent
Fréttamynd

„Ljóst að deilunni er ekki lokið“

Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað.

Innlent
Fréttamynd

Ólga í Sam­fylkingu: „Þessi ó­lög eru ekki í okkar nafni sett“

Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar í aðsendri grein á vef Vísis í dag. 55 skrifa undir greinina og mótmæla lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð. Þau segja „krappa hægri beygju“ í stefnu flokksins ekki hafa verið rædda á vettvangi hans og hún sé, að þeirra mati, í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið.

Innlent
Fréttamynd

Færa um­ferð af norður- á suðurak­braut á Breiðholts­braut

Í dag, fimmtudaginn 11. júní, á milli klukkan 06:00 og 09:00 er stefnt á að færa umferð um Breiðholtsbraut af norðurakbraut yfir á suðurakbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Mögu­leiki á tuttugu stiga hita

Í dag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og nokkuð hlýtt, hiti yfirleitt á bilinu 13 til 19 stig og möguleiki á að 20 stig geti mælst á stöku veðurstöð.

Veður