Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB. Innlent 10.6.2026 23:13
Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, opnaði sig um hatursorðræðu og áhyggjur sínar af lýðræðislegri umræðu. Svæsin ummæli um hana og aðra þingmenn vekja upp spurningar. Innlent 10.6.2026 22:55
Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um að taka við sem stjórnarformaður Orkuveitunnar. Innlent 10.6.2026 21:36
Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Matvara hefur hækkað meira á Íslandi en annars staðar í Evrópu undanfarin fimm ár, samkvæmt greiningu Samkeppniseftirlitsins. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir stjórnvöld geta gert mun meira til að bregðast við þróuninni. Innlent 10.6.2026 18:02
Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi. Innlent 10.6.2026 17:44
Sofandi á akbraut Lögreglunni barst tilkynning um konu í annarlega ástandi sem hafði sofnað á akbraut. Hún var flutt á sjúkrahús. Innlent 10.6.2026 17:33
Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Heitavatnslaust verður í Vesturbæ, Miðborg og hluta af Hlíðum í kvöld, 10. júní, klukkan 22:00 og fram undir morgun fimmtudags, 11. júní. Innlent 10.6.2026 17:08
Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. Innlent 10.6.2026 16:43
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. Innlent 10.6.2026 16:24
Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Litlir rauðir blettir á myndum James Webb-geimsjónaukans (JWST) hafa um nokkuð skeið vakið furðu stjörnufræðinga og geimvísindamanna. Nú hefur þessi gáta mögulega verið leyst og rennir lausnin stoðum undir tilvist þess sem kallað er „svartholsstjarna“. Erlent 10.6.2026 15:40
Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu var heimilt að neita Vísi um aðgang að umsögn um reynslu af sérlausn sem Ísland fékk fyrir flug í ETS-losunarkerfinu. Úrskurðarnefnd taldi að greininingin gæti veitt Evrópusambandinu innsýn í samningsmarkmið Íslands. Innlent 10.6.2026 15:30
Barn réðst með belti á önnur börn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar líkamsárás barns á tvö önnur börn í strætóskýli í Hlíðunum í gær. Barnið er talið hafa beitt belti við árásina. Innlent 10.6.2026 15:16
Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“ Innlent 10.6.2026 15:04
Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. Innlent 10.6.2026 14:48
Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Nýkjörinn formaður Sósíalistaflokksins segir framkvæmdastjórn flokksins hafa tekið ákvörðun um að skrá félaga úr flokknum. Þeir sem vinni gegn flokknum eigi ekkert erindi á aðalfund. Varaformaður segir stjórnina hafa fylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar. Það sé ekki þeirra vandamál að upplýsa fólk um að það hafi verið rekið úr flokknum. Innlent 10.6.2026 14:28
Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans. Ekki er talið um „brýna nauðsyn“ að ræða. Eiginkona Jóns Atla segir þau þegar búin að tapa dýrmætum tíma í baráttu sinni og óttast að börnin þeirra missi föður sinn fyrr en þau þurfa fái hann ekki aðgang að meðferðinni. Innlent 10.6.2026 13:46
Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Ráðamenn í Rússlandi og í Sýrlandi eiga í viðræðum um samskipti ríkjanna og um tvær rússneskar herstöðvar í Sýrlandi. Meðal annars segir talskona utanríkisráðuneytis Rússlands að mögulega verði viðvera Rússa í herstöðvunum endurskipulögð. Erlent 10.6.2026 13:40
Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga verið um fimmtíu og níu þúsund, en það eru 11 prósent færri brottfarir en í maí síðasta árs. Samkvæmt nýjustu tölum Ferðamálastofu voru um hundrað sextíu og þrjú þúsund brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli í maí. Það er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. Innlent 10.6.2026 13:33
Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Það lítur út fyrir að besta veður sumarsins gæti leikið um höfuðborgarbúa á föstudaginn. Útlit er fyrir 20 stiga hita og veðurfræðingur segir það nokkuð pottþétt. Veður 10.6.2026 13:21
Hvetur almenning til að vera á varðbergi Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar segir undirbúning hafinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún hvetur almenning til að vera vakandi fyrir erlendum aðilum sem reyna að hafa áhrif á umræðuna í aðdraganda kosninganna. Um áhyggjuefni sé að ræða. Innlent 10.6.2026 13:17
Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar. Innlent 10.6.2026 13:12
Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ „Það rekur hér hvert kjaftshögg annað,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Hóteli Breiðavíkur við Látrabjarg. Hún lenti nýverið í klóm netþrjóta sem bjóða upp á norðurljósaferðir í júlí í nafni hótelsins og segir sömuleiðis að það rigni inn afbókunum vegna óvissu með Breiðafjarðarferju. Innlent 10.6.2026 12:45
Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað. Innlent 10.6.2026 12:01
Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Ríkisendurskoðun telur innleiðingu farsældarlaga um samþættingu þjónustu við börn ekki hafa verið nægilega vel undirbúna og að hópar barna með fjölþættan og vímuefnavanda skorti enn þjónustu því meiri áhersla hafi verið lögð á samvinnu en að bæta úrræði. Innlent 10.6.2026 11:42