Fréttir

Fréttamynd

Náttúruminjasafn og Náttúru­fræði­stofnun renna saman

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ríkis­stjórnin beri á­byrgð á hindrunum Þór­kötlu

Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað.

Innlent
Fréttamynd

Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi

Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Marius sleppur ekki eftir allt saman

Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað.

Erlent
Fréttamynd

Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar.

Erlent
Fréttamynd

Leiðtogaskipti hjá Sósíal­ista­flokknum

Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land frið­sælasta land heims ní­tjánda árið í röð

Ísland er nítjánda árið í röð friðsælasta land heims samkvæmt greiningu áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace, IEP. Stofnunin hefur gefið út frá árinu 2007 skýrslu þar sem hún greinir friðsælustu ríki heims og þau ríki þar sem mestur ófriður ríkir.

Erlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grinda­víkur

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista.

Innlent
Fréttamynd

Eldhúsdagur runninn upp

Þingfundur á Alþingi stóð fram til klukkan hálftíu í gærkvöldi þar sem mestu púðri var eytt í umræður um samgönguáætlun eftir að frumvarp um brottfararstöð svokallaða var samþykkt í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Skúrir víða um land og lægð nálgast austur­strönd

Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land.

Veður
Fréttamynd

Ó­eirðir í Belfast eftir hnífstungu

Til óeirða kom í nótt í Belfast á Norður-Írlandi þar sem kveikt var í húsum, bílum og strætisvögnum í kjölfar mótmæla gegn innflytjendum. Hópar grímuklæddra manna eru sagðir hafa farið um hverfi borgarinnar og prestur í norðurhluta hennar segir að sérstaklega hafi verið ráðist að heimilum svartra í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Stefna á að opna kaffi­stofuna síðar í þessum mánuði

Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.

Innlent