Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu. Innlent 14.6.2026 08:21
250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð. Veður 14.6.2026 07:40
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina. Innlent 14.6.2026 07:30
Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 prósent svarenda vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara. Innlent 13.6.2026 18:10
Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samninginn ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar. Innlent 13.6.2026 17:20
Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins. Innlent 13.6.2026 16:35
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Bandarísk stjórnvöld hafa gert tæknirisanum Anthropic að loka fyrir aðgang erlendra ríkisborgara að nýjasta gervigreindarlíkani Claude. Íslenskir notendur hafa ekki getað notað líkanið síðan í gær. Innlent 13.6.2026 15:29
Áfall fyrir bæjarfélagið Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018. Innlent 13.6.2026 15:14
„Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook. Innlent 13.6.2026 14:50
Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. Innlent 13.6.2026 14:40
„Við horfum bjartsýn fram á veg“ Brautskráning Bifrastar fór fram í dag í Borgarnesi. Aldrei hafa fleiri brautskrást frá skólanum eða 279 manns og því um stærstu útskrift skólans frá upphafi að ræða. Innlent 13.6.2026 14:12
„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. Erlent 13.6.2026 12:38
Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Boðað hefur verið til nýs fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara. Þremur flugferðum Icelandair var aflýst í nótt og í morgun. Vélarnar áttu að koma til landsins frá Mílanó, Boston og New York. Innlent 13.6.2026 12:20
Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári og í dag gefst almenningi einstakt tækifæri til að skoða búnað gæslunnar. Gefst fólki meðal annars kostur á að skoða þyrlur og sprengjuleitarróbóta gæslunnar í návígi. Innlent 13.6.2026 12:18
Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna. Innlent 13.6.2026 12:12
Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar Við förum yfir stöðuna í Íran en forsætisráðherra Pakistans sagði í gær að lokaorðalag friðarsáttmála hefði verið samþykkt af forsvarsmönnum Bandaríkjanna og Íran. Samkvæmt alþjóðastjórnmálafræðingi skila átökin litlu sem engu. Friður sé langt frá því að vera fastur í hendi. Innlent 13.6.2026 11:42
„Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Skipstjóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar, segir ítrekaðar æfingar um borð lífsnauðsynlegar og þær hafi skilað sér eins og best var á kosið í gær þegar eldur kom upp um borð. Stór og mikill eldur hafi blossað upp í vélarrúmi skipsins og reykur hafi fyllt afturskipið á örskotsstundu. Innlent 13.6.2026 10:58
Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott. Innlent 13.6.2026 10:00
Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. Veður 13.6.2026 09:57
Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Rúmlega 2600 kandítatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Hægt er að fylgjast með athöfnunum í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 13.6.2026 09:47
Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina. Innlent 13.6.2026 07:55
Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. Innlent 13.6.2026 07:46
Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu. Veður 13.6.2026 07:32
Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnbanns Bandaríkjanna í Íran. Erlent 12.6.2026 22:26
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“