Fréttir

Fréttamynd

Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meiri­hluta

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Meiri­hluti bíður eftir greiningu í meira en ár

Í árslok 2025 var 2.651 barn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis kemur fram að meirihluti þeirra hafði þá beðið eftir þjónustu í meira en ár og um 11 prósent í meira en þrjú ár. Drengir voru almennt yngri en stúlkur á biðlista.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunar­efni

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað umleitan Alabama um að fá að taka fanga af lífi með köfnunarefni. Yfirvöldum í ríkinu hafði áður verið hafnað á tveimur lægri dómstigum, með þeim rökum að um væri að ræða brot gegn ákveðum stjórnarskrárinnar gegn grimmilegum og óvenjulegum refsingum.

Erlent
Fréttamynd

Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í Ár­bænum

Eldur kviknaði í íbúð í Árbænum en reyndist hann minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Búið er að slökkva eldinn.

Innlent
Fréttamynd

Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins

Guðmundur Andri telur ekki rétt að kalla ágreining sem undanfarið hefur myndast innan raða Samfylkingarfólks klofning. Hann segist þó halda að nýleg stefnubreyting, kröpp hægri beygja, hafi ekki verið nægilega mikið rædd á vettvangi flokksins. Guðmundur er einn þeirra sem skrifuðu undir skoðanapistil þar sem hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta

Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar kreddum um verð­bólguna

Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í uppbótartíma

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Bretar sam­þykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu

Yfirvöld í Bretlandi eru þau fyrstu í Evrópu til að samþykkja sölu þyngdarlosunarlyfsins Wegovy í pilluformi. Lyfið er framleitt af danska fyrirtækinu Novo Nordisk en hingað til hafa neytendur þurft að sprauta því í sig.

Erlent
Fréttamynd

Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“

Hlutar hinnar frægu byggingar sem hýsir varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, voru rýmdir í dag og starfsmönnum víða sagt að halda kyrru fyrir. Það var gert eftir að öryggiskerfi byggingarinnar greindi það sem kallað hefur verið „loftgæðafrávik“. Engin hætta reyndist á ferðum.

Erlent
Fréttamynd

Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vestur­bakkanum

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Hótaði að beita skot­vopni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki haft uppi á manni sem grunaður er um að hafa hótað starfsfólki Hagkaupa í dag. Lögregla telur sig vita hver maðurinn er en hefur ekki náð tali af honum.

Innlent
Fréttamynd

Finnur ekki fyrir sárs­auka

Þrír íslenskir bræður hafa greinst með meðfætt sársaukaleysi og er sjúkrasaga eins þeirra rakin í nýjasta Læknablaðinu. Þar kemur fram að sá hafi meðal annars bitið fremst af tungunni í æsku án þess að finna fyrir því og upplifi hvassa hluti meira eins og snertingu.

Innlent
Fréttamynd

Á­rásar­maður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mann­réttindum minni­hluta­hópa

Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Gera úkraínsk ung­menni að launmorðingjum

Æðsti yfirmaður lögreglunnar í Úkraínu segir útsendara frá leyniþjónustum Rússa fá úkraínskar táningsstúlkur og ungar konur til að myrða úkraínska hermenn. Stúlkunum er lofað að þær fái peninga fyrir að fylgja leiðbeiningum og eitra fyrir mönnum sem þær mæla sér jafnvel móts við gegnum internetið.

Erlent
Fréttamynd

Boðar harðar á­rásir og her­nám Kharg-eyju

Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela.

Erlent