Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Maður sakar bílaumboðið Öskju um að hafa ætlað að svindla á sér eftir að framleiðslugalli kom upp í vél á Honda-bílnum hans eftir um 61 þúsund kílómetra akstur. Askja hefði átt að bæta tjónið en rukkaði hann upphaflega um fjórar milljónir til að laga bílinn. Hann sakar fyrirtækið um misbresti og siðlausa viðskiptahætti og varar aðra við því að stunda viðskipti við umboðið. Innlent 25.9.2024 00:27
Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG „Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“ Innlent 24.9.2024 23:32
Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum „Varðandi MeToo-umræðuna. Að mörgu leyti hefur regluverkið ekki mikið breyst í gegnum tíðina. Kannski hefur verið skerpt aðeins á því hvað telst einelti og hvað er ofbeldi og slíkt en fyrirtækin eru að taka þetta miklu miklu fastari tökum og miklu meira formfast og rannsaka þetta með skipulögðum hætti. Málin eru bara svo flókin, það er engin ein leið rétt.“ Innlent 24.9.2024 22:47
Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Brotist hefur verið inn í fjölmargar reiðhjólaverslanir á árinu, síðast fyrir helgi. Lögreglumaður segir innbrot í slíkar verslanir nokkuð ný af nálinni. Algengt sé að erlendir glæpahópar greiði Íslendingum fyrir að ræna verslanir og dæmi um að reynt hafi verið að senda þýfið úr landi. Innlent 24.9.2024 20:00
Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt og nýtur nú marktækt meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Svandís Svavarsdóttir, sem tilkynnti framboð sitt til formanns Vinstri grænna í dag, telur eðlilegt að framtíð stjórnarsamstarfsins verði rædd á landsfundi hreyfingarinnar í næstu viku. Innlent 24.9.2024 18:32
Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Talsverð tíðindi eru í glænýrri könnun Maskínu; þeirri fyrstu sem birtist eftir upphaf síðasta þingvetrar kjörtímabilsins. Heimir Már Pétursson rýnir í könnunina í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formannsefni VG, sem telur rétt að stefna að kosningum í vor. Þá heyrum við í formönnum Miðflokksins og Flokks fólksins í beinni útsendingu. Innlent 24.9.2024 18:00
Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Fjögur voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald til næsta föstudags vegna innbrota í tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu seint á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags. Auk þeirra eru þrjú í haldi. Öll eru þau erlendir ríkisborgarar. Innlent 24.9.2024 17:59
Tveir í bílnum sem ók út af Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. Innlent 24.9.2024 17:55
Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Þó nokkrir urðu vitni að því þegar karlmaður féll í Hlauptungufoss í Brúará um klukkan 13 í dag. Maðurinn fannst látinn skömmu síðar. Um var að ræða erlendan ferðamenn. Innlent 24.9.2024 17:46
Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 24.9.2024 16:34
Inga skellihló að Sigurði Inga Formaður Flokks fólksins segir að það myndi bæta lífskjör almennings og minnka verðbólgu verulega að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólgumælingum og spyr hvers vegna það sé ekki gert. Fjármála- og efnahagsráðherra segir það af og frá. Innlent 24.9.2024 16:23
Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Sveitarfélagið Árborg vekur athygli íbúa sinna á því að álag var sett á útsvar í upphafi þessa árs. Íbúar eru hvattir til að hafa þetta í huga þegar þeir skipuleggja fjármál sín næsta árið. Ítrekað er að útsvarsaukningin er „aðeins hugsuð til að hámarki tveggja ára“. Innlent 24.9.2024 16:04
Skerða orku til stórnotenda Orka verður skert til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Skerðingarnar eiga að hefjast þann 24. október, nema eitthvað breytist, og eru þær tilkomnar vegna slæmrar stöðu miðlunarlóna á Þjórsársvæðinu. Innlent 24.9.2024 16:02
Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Viðbragðsaðilum var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga um tvöleytið í dag. Innlent 24.9.2024 15:47
Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar sótti hart að Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra í ræðustól þingsins í óundirbúnum fyrirspurnum nú fyrir stundu. Innlent 24.9.2024 15:40
Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Verkstjóri á Bakkafirði hefur ýmislegt við framkomu sérsveitarmanna að athuga sem komu að handtöku pólsks karlmanns og kærustu hans í þorpinu í gær. Hann segir nokkra svarta sauði í samfélaginu gera það að verkum að fimm manna fjölskyldan ætlar að flytja úr bænum eftir fimm ára dvöl. Afskiptasemi og neikvæðni ráði ríkjum á Bakkafirði. Innlent 24.9.2024 15:31
Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember. Innlent 24.9.2024 15:14
Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem nýjan formann stjórnar Matvælasjóðs. Innlent 24.9.2024 14:31
Faðirinn ekki lengur í einangrun Sigurður Fannar Þórsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 21. október í Héraðsdómi Reykjaness í dag að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku. Innlent 24.9.2024 14:22
Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Seðlabankinn hefur brugðist lögbundnu hlutverki sínu og vinnur gegn fólkinu í landinu, að mati formanns VR. Hann segir nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin komist út úr kjarasamningum sem fyrst, „með góðu eða illu“. Innlent 24.9.2024 14:21
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. Innlent 24.9.2024 14:02
Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata beindi spurningu til Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum; hvort hann sæi ekki eftir því að hafa ekki tryggt nægilegt fjármagn 2020 til þess að vinna að andlegri líðan. Sigurður Ingi sagði vandann meðal annars þann að skortur væri á sálfræðingum. Innlent 24.9.2024 13:58
Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Tæpur fjórðungur af heildarkostnaði við forsetaframboð Baldurs Þórhallssonar kom úr hans eigin vasa. Kostnaðurinn nam tæpum 20,4 milljónum króna en framboðið endurgreiddi styrki sem fóru umfram lögbundið hámark. Innlent 24.9.2024 13:44
Maðurinn fannst látinn Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða. Innlent 24.9.2024 13:13