Handbolti

Anton og Jónas dæma hjá Guðjóni Val

Jónas og Anton.
Jónas og Anton.
Handboltadómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson fá enn eitt risaverkefnið í Meistaradeildinni þann 6. desember næstkomandi.

Þá dæma þeir leik Wisla Plock og Barcelona en leikurinn fer fram í Orlen Arena.

Þetta er þriðji leikurinn sem þeir félagar fá í Meistaradeildinni á þessari leiktíð.

Í leiknum munu þeir hitta fyrir Guðjón Val Sigurðsson sem leikur með Barcelona eins og kunnugt er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×