Sport

Annie Mist efst Íslendinganna eftir tvær greinar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Annie Mist Þórisdóttir hefur tvíegis sigrað á heimsleikunum í crossfit.
Annie Mist Þórisdóttir hefur tvíegis sigrað á heimsleikunum í crossfit. Vísir/GVA
Annie Mist Þórisdóttir er í fimmta sæti í kvennaflokki á heimsleikunum í crossfit eftir tvær greinar. Fyrst var keppt í brekku- og víðavangshlaupi og skömmu síðar í réttstöðulyftu. Keppt er í Aromas í Kaliforníu þangað sem keppendur flugu óvænt í nótt.

Annie var í tólfta sæti eftir hlaupið en lyfti sér upp í fimmta sæti samanlagt með góðum árangri í réttstöðulyftunni og er með 132 stig samanlagt. Candice Wagner leiðir með 174 stig eftir tvær greinar.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í 9. sæti með 122 stig, Katrín Tanja Davíðsdóttir er í 18. sæti með 88 stig og Þuríður Erla Helgadóttir í 20. sæti með 80 stig.

Björgvin Karl Guðmundsson er í 16. sæti í karlaflokki með 96 stig. Alex Vigneault hefur 170 stig í efsta sæti. 

Framundan er keppni í þriðju grein en keppendur eiga enn eftir að fá að vita í hverju keppt verður.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×