Sport

Anna Soffía og Sighvatur Magnús Íslandsmeistarar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr Jiu Jitsu viðureign.
Úr Jiu Jitsu viðureign. Myndasíða Mjölnis
Sighvatur Magnús Helgason úr Mjölni og Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í brasilísku Jiu Jitsu. Rúmlega fimmtíu keppendur kepptu á Íslandsmótinu sem fram fór í Laugardalnum í dag.

Mjölnir átti flesta verðlaunahafa á mótinu. Sex Íslandsmeistarar komu úr röðum félagsins. Ármann átti næst flesta Íslandsmeistara eða þrjá.

Þetta er fjórða Íslandsmótið sem haldið er í íþróttinni sem nýtur aukinna vinsælda hérlendis. Ekki er þar síst að þakka góðum árangri Gunnars Nelson á alþjóða vettvangi.

Gunnar, sem átti titil að verja í opnum flokki, var ekki meðal keppenda í dag. Sömu sögu er að segja um Auði Skúladóttur sem átti titil að verja í kvennaflokki. Bæði dvelja þau erlendis við æfingar.

Úrslitin að neðan eru fengin af heimasíðu BBJ-sambandsins. Sjá hér.

Karlar:

-64 kg

1. Axel Kristinsson – Mjölnir

2. Aron Elvar Zoega – Pedro Sauer

3. Bjarki Jóhannsson – Combat Gym

-76 kg

1. Pétur Daníel Ámundarson – Combat Gym

2. Aron Daði Bjarnason – Fenrir

3. Óskar Kristjánsson – Mjölnir

-82,3 kg

1. Arnar Freyr Vigfússon – Combat Gym

2. Daði Steinn Brynjarsson– Combat Gym

3. Helgi Rafn Guðmundsson – Sleipnir

-88,3 kg

1. Eiður Sigurðsson - Mjölnir

2. Sigurbjörn Bjarnason – Mjölnir

3. Svavar Már Svavarsson – Combat Gym

-94,3 kg

1. Sighvatur Magnús Helgason – Mjölnir

2. Davíð Sölvason – Pedro Sauer

3. Hjörtur Ólafsson – Pedro Sauer

-100,5 kg

1. Þráinn Kolbeinsson – Mjölnir

2. Þorvaldur Blöndal – Ármann

3. Ingþór Örn Valdimarsson – Fenrir

+100,5 kg

1. Björn Sigurðarson – Ármann

2. Ívar Þór Ágústsson – Mjölnir

3. Pétur Hafliði Sveinsson – Mjölnir

Opinn flokkur karla:

1. Sighvatur Helgason – Mjölnir

2. Þráinn Kolbeinsson – Mjölnir

3. Axel Kristinsson – Mjölnir

Konur:

-64 kg

1. Sunna Rannveig Davíðsdóttir – Mjölnir

2. Helga Hansdóttir – Fenrir

3. Berglind Svansdóttir – Mjölnir

+64 kg

1. Anna Soffía Víkingsdóttir – Ármann

2. Anna Guðbjört Sveinsdóttir – Mjölnir

3. Aðalheiður Dögg Ármannsdóttir – Mjölnir

Opinn flokkur kenna:

1. Anna Soffía Víkingsdóttir – Ármann

2. Sunna Rannveig Davíðsdóttir – Mjölnir

3. Helga Hansdóttir – Fenrir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×