Sport

Aníta náði sínum besta tíma á árinu í 800 metra hlaupi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aníta náði flottum tíma í Nimone.
Aníta náði flottum tíma í Nimone. vísir/daníel
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, náði sínum besta tíma á árinu í 800 metra hlaupi á móti í Nimone í Belgíu í gær.

Aníta kom í mark á tímanum 2:01,15 mínútum og endaði í 2. sæti á þessu sterka móti.

Íslandsmet Anítu í greininni er 2:00,49 mínútur en besti tími hennar í ár var 2:01,50 mínútur svo um umtalsverða bætingu er að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×