Sport

Aníta efnilegasta frjálsíþróttakona Evrópu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir.
Aníta Hinriksdóttir. Mynd/NordicPhotos/Getty
ÍR-ingurinn Aníta Hinriksdóttir, Heims- og Evrópumeistari unglinga í 800 metra hlaupi kvenna, fékk í kvöld gríðarlega stóra viðurkenningu þegar hún var valin vonarstjarna evrópska frjálsíþrótta í kvennaflokki, Rising Star, af Frjálsíþróttasambandi Evrópu en verðlaunin voru veitt í kvöld á uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Evrópu, EAA, sem stendur nú yfir í Tallinn í Eistlandi. Aníta er því að mati sérfræðinga og áhugamanna efnilegasta frjálsíþróttakona Evrópu.

Hollenski spretthlauparinn Dafne Schippers varð í öðru sæti í kjörinu en í þriðja sæti var síðan Amela Terzic, 1500 metra hlaupari frá Serbíu.

Bohdan Bondarenko, hástökkvari frá Úkraínu var kosinn Frjálsíþróttamaður ársins í Evrópu en Frjálsíþróttakona ársins var valin Zuzana Hejnová frá Tékklandi en hún vann 400 metra grindarhlaup á HM í Moskvu.

Aníta sló heldur betur í gegn í frjálsíþróttaheiminum síðasta sumar þegar hún vann gullverðlaun á HM 17 ára og yngri í Donetsk og EM 19 ára og yngri með aðeins sex daga millibili í júlí í sumar. Aníta hljóp fimm hlaup á þessum 10 dögum sem þessi tvö stórmót stóðu yfir og sýndi mikið sjálfstraust og öryggi í þeim öllum og bætti Íslandsmetið meðal annars í tvígang.

Val EAA, Frjálsíþróttasambands Evrópu, fór fram með fernum hætti. Fyrst var kosið á Facebook þar sem allir áttu atkvæðisrétt, en þar hlaut Aníta langflest atkvæði af þeim samtals rúmlega 16 þúsund atkvæðum sem bárust. Síðan voru vegin atkvæði bæði 54 sambanda íþróttafréttamanna í Evrópu og aðildarsambanda EAA. Loks kom nefnd sérfræðinga að valinu. Hlutur hvers þessara hópa vóg jafnt um heildarniðurstöðuna.

Aníta hljóp best á tímanum 2:00,49 mínútum í sumar sem er næst besti árangur í þessari grein í ár hjá 17 ára stúlkum.  Aníta á nú 2.- 8. besta árangur í sínum aldursflokki frá upphafi í greininni og hún er ennfremur í 44. sæti á heimslista fullorðinna í ár.



Hér má sjá þrjá efstu í öllum flokkum í þessu kjöri:

Frjálsíþróttamaður ársins í Evrópu 2013:

1.     Bohdan Bondarenko (Úkraína)

2.     Mo Farah (Bretland)

3.     Pawel Fajdek (Pólland)

Frjálsíþróttakona ársins í Evrópu 2013:

1.     Zuzana Hejnová (Tékkland)

2.     Yelena Isinbayeva (Rússland)

3.     Valeria Straneo (Ítalía)

Vonarstjarna evrópska frjálsíþrótta hjá körlum 2013:

1.     Emir Bekrić (Serbía)

2.     Adam Gemili (Bretland)

3.     Karsten Warholm (Noregur)

Vonarstjarna evrópska frjálsíþrótta hjá konum 2013:

1.     Anita Hinriksdottir (Ísland)

2.     Dafne Schippers (Holland)

3.     Amela Terzic (Serbía)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×