Enski boltinn

Angel di Maria nálgast Manchester United

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Angel di Maria í leik með Real Madrid
Angel di Maria í leik með Real Madrid vísir/getty
Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastöðvarinnar mun Angel di Maria ganga til liðs við Manchester United í næstu viku.

Samkvæmt Sky mun enska stórliðið greiða Real Madrid meira en 60 milljónir evra fyrir argentínska kantmanninn.

Di Maria hefur fallið í ónáð hjá Real Madrid og var til að mynda ekki í leikmannahópi liðsins í gær í seinni leiknum um Stórbikarinn á Spáni.

Gengið verður frá kaupunum í næstu viku en viðræðurnar eru það langt komnar að Sky hefur heimildir fyrir því að Angel di Maria muni klæðast treyju númer 7 hjá Manchester United.

Ljóst er að Di Maria styrkir lið Manchester United mikið en samherji hans hjá Real Madrid, Ronaldo, fyrrum leikmaður United mælti með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×