Fótbolti

Andy Hunter: England gæti lent í basli gegn Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andy Hunter er einn þekktasti blaðamaður Guardian en hann var kominn til Annecy í dag til að fylgjast með æfingu íslenska landsliðsins. Hann segir að það hafi verið mikill áhugi á íslenska liðinu fyrir en hann hafi farið upp úr öllu valdi eftir að ljóst var að England yrði andstæðingur okkar manna í 16-liða úrslitunum.

„Þetta er rómantísk saga. Ísland er lítið land og fólk var heillað af því að það væru 10 prósent af þjóðinni að koma hingað út til Frakklands. Það vilja allir að smáliðunum gangi vel,“ sagði Hunter í viðtali við Vísi í dag.

„Auðvitað voru margir fegnir að sleppa við Portúgal sem sló okkur út á tveimur stórmótum í röð. Einhverjir segja að þetta sé auðveldur dráttur en það er ekkert slíkt til þegar England á í hlut.“

„Ég held að það væri lítið gert úr Íslandi með því að hugsa um Ísland í því ljósi.“

England fékk tækifæri til að vinna sinn riðil á EM en gerði markalaust jafntefli við Slóvakíu í lokaleik riðilsins. Hunter reiknar með að England fái svipaðan leik gegn Íslandi og í þeim leik.

„England gæti lent í vandræðum gegn Íslandi. Þeir voru ekki sannfærandi gegn Slóvakíu. Þeir fengu nokkur færi þegar Slóvakía varðist með hárri línu og Vardy komst inn á milli þeirra. Slóvakar gerðu ekki þau mistök aftur.“

„Roy Hodgson veit ekki enn hvað hans sterkasta byrjunarlið er en að móti kemur að liðið fær nú viku til að undirbúa sig fyrir þennan leik. Það gæti verið vandamál fyrir Ísland.“

Viðtalið má sjá allt hér fyrir ofan en þar ræðir Hunter meðal annars um myndbandið af Gumma Ben sem hefur farið um allan heim eftir leikinn í gær.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×