Fótbolti

Ancelotti: Wenger þolir alveg smá gagnrýni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þrír góðir. Carlo Ancelotti, Sir Alex Ferguson og Arsene Wenger.
Þrír góðir. Carlo Ancelotti, Sir Alex Ferguson og Arsene Wenger. Vísir/Getty
Carlo Ancelotti segist bera mikla virðingu fyrir Arsene Wenger en þeir félagar mætast með lið sín í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Lærisveinar Carlo Ancelotti í þýska liðinu Bayern München fá þá Arsenal í heimsókn á Allianz Arena í fyrri leik liðanna í baráttunni um sæti í átta liða úrslitunum.

Arsenal virðist enn á ný vera að missa af lestinni í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn og líkt og oftast áður var heppnin ekki með Lundúnaliðinu þegar dregið var í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Stuðningsmenn Arsenal hafa verið að gagnrýna knattspyrnustjórann sinn og stór hluti þeirra finnst þetta verið komið gott hjá Frakkanum eftir meira en tveggja ára tuga starf.

„Hann hefur byggt upp lið með sterka ímynd og lið sem spilar góðan fótbolta,“ sagði Carlo Ancelotti á blaðamannafundi fyrir leikinn.

„Wenger hefur reynsluna til að vita það að það er eðlilegt að fá á sig gagnrýni í fótboltanum. Wenger þolir því alveg smá gagnrýni,“ sagði Ancelotti.

„Ég ber mikla virðingu fyrir starfi hans hjá Arsenal,“ sagði Ancelotti.

Arsenal er í fjórða sæti í ensku úrvalsdeildinni, tíu stigum á eftir Chelsea. Liðið þarf því að treysta á Meistaradeildina og enska bikarinn ætli það að vinna titla á tímabilinu.

Mótherjinn er hinsvegar ekki af verri gerðinni og það sem er enn verra að Bayern hefur þrisvar sinnum slegið Arsenal út úr Meistaradeildinni frá árinu 2005. Arsenal hefur aldrei náð að slá út Bayern München.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×