Lífið

Amy Schumer hertók Tinder ókunnugrar konu og matchaði grimmt

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
IT'S A MATCH!
IT'S A MATCH! Mynd/Skjáskot
Leikkonan og grínistinn Amy Schumer segist aldrei hafa notað Tinder áður en hún virðist heldur betur vita hvernig eigi að lokka karlmennina. Sýndi hún fram á það með því að taka yfir stefnumótaforritið Tinder hjá blaðakonu tímaritsins Vanity Fair í heilar tíu mínútur.

Myndbandið var ekki hálfnað áður en að Schumer var búinn að matcha fjórum sinnum fyrir hönd blaðakonunnar og á endanum ræddi hún við ansi krúttlegan slökkviliðsmann sem einnig reyndist vera kattelskandi hjúkka.

Schumer dældi þó einnig út ráðleggingum til kvenna, þar á meðal þeim gullmola að aldrei ætti að treysta mönnum sem eru með gítar með sér á mynd á Tinder, þeir hefðu bara eitt í huga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×