Formúla 1

Alonso: Ég vildi aka þrátt fyrir sársaukann

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fernando Alonso braut rifbein í byltunni í Ástralíu.
Fernando Alonso braut rifbein í byltunni í Ástralíu. Vísir/Getty
Fernando Alonso er rifbeinsbrotinn eftir harðan árekstur í síðustu Formúlu 1 keppni. Hann mun þess vegna ekki taka þátt í keppninni í Bahrein um helgina.

„Ég verð skoðaður aftur eftir átta eða níu daga og þá verður tekin ákvörðun um hvort ég geti keppt í Kína,“ sagði Alonso á blaðamannafundi í dag.

Sjá einnig: Þú sást skýin, jörðina, skýrin og þú vildir bara stöðva.”

„Ég er vonsvikinn, ég hefði viljað taka þátt um helgina. Ég vil hjálpa Stoffel [Vandoorne] og sjá hvernig uppfærslur bílsins virka. Liðið bauð mér að fljúga heim en ég tók það ekki í mál,“ sagði Alonso sem braut rifbein vinstra megin í árekstrinum.

Alonso sagðist vera farinn að jafna sig en beinin hefðu ekki gróið nógu mikið til að læknarnir væru sáttir.

„Ég vildi aka þrátt fyrir sársaukann. Sársaukann má bæla niður en læknarnir sögðu að það væri hætta á frekari meiðslum,“ sagði Alonso.

„Ég sá ekkert hvernig ástand bílsins var, ég vildi bara koma fótunum á jörðina. Með höfuðvörnina hefði ég sennilega samt komist út úr bílnum. Hausinn var það eina sem ég var hræddur um í árekstrinum. Höfuðvörnin hefði verið velkomin þarna,“ sagði Alonso, aðspurður um hvort hann hefði séð hvort bíllinn hefði staðið í ljósum logum og hvort hann hefði viljað komast eins fljótt og hægt var út úr bílnum.

Stoffel Vandoorne er varaökumaður McLaren liðsins, hann er í flugi á milli Bahrein og Japan. Hann var staddur við æfingar í Japan fyrir SúperFormúluna. Vandoorne mun taka sæti Alonso um helgina. 


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Átökin í Ástralíu

Fyrsta Formúlu 1 keppni tímabilsins fór fram í Ástralíu um helgina. Keppnin var spennandi frá upphitunarhring og fram á síðasta hring. Farið verður yfir margt af því helsta frá Ástralíu í Bílskúrnum, uppjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×