Tónlist

Alltaf langað að spila á Sónar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ólafur Arnalds spilar sama dag og Kraftwerk.
Ólafur Arnalds spilar sama dag og Kraftwerk. Fréttablaðið/Anton

Hljómsveitin Ólafur Arnalds Trio er ein þeirra fjögurra íslenskra hljómsveita sem koma fram á Sónar í Barcelona um helgina. Sónar er ein virtasta tónlistarhátíð Evrópu sem fer fram á ári hverju.

„Mér var einu sinni boðið að spila á hátíðinni en ég gat það ekki, þannig að ég er sérstaklega spenntur fyrir Sónar og mig hefur alltaf langað til að spila þarna,“ sagði tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds.

Ólafur Arnalds spilar með tríóinu sínu á Sónar þetta árið. „Þetta er svona mínímalísk útgáfa af því sem ég geri venjulega. Þá erum við oft tólf í hljómsveitinni en í þetta sinn erum við bara þrjú. Björk Óskarsdóttir verður á fiðlu og Anne Muller á sellói,“ sagði Ólafur jafnframt.

„Sónar er mjög spennandi hátíð. Ég er til dæmis að spila sama dag og Kraftwerk, sem er frekar svalt. Og þetta hjálpar allt, þarna er fullt af tónleikahöldurum frá öðrum hátíðum en aðallega er maður þarna náttúrulega að spila fyrir fólkið. Ef það fylgja fleiri og stærri bókanir í framhaldið þá er það bara hið besta mál,“ sagði Ólafur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×