Allt lagt undir og reynt að feta í fótspor Plain Vanilla Stefán Árni Pálsson skrifar 10. febrúar 2014 15:42 Nýr samfélagsmiðill í appformi sem tengir saman vini á skemmtanalífinu. visir/daníel
Blendin er nýr samfélagsmiðill í appformi sem tengir saman vini á skemmtanalífinu. Í appinu getur þú séð hvaða vinir, vinkonur eða vinnufélagar eru að fara að skemmta sér, með hverjum, hvar og hvað þau eru að gera. „Ég var staddur í samkvæmi í Danmörku þegar Egill Ásbjarnarson, meðstofnandi Blendin, kom til mín með hugmynd að nýju appi. App sem mundi leysa það vandamál að þurfa að hringja endalaust af símtölum til þess eins að afla upplýsinga um hverjir væru að fara að skemmta sér,“ segir Davíð Örn Símonarson, framkvæmdarstjóri Blendin. „Frá því hefur hugmyndin breyst mikið og í dag einu og hálfu ári seinna erum við komnir með app sem er í prófunum bæði á iOS og Android tækjum.“ Blendin verður fyrsti lokaði samfélagsmiðillinn sem þýðir að fólk mun ekki geta deilt efni úr appinu á aðra samfélagsmiðla eins og Facebook eða Twitter. Þannig getur maður valið hvaða vinir fá sent efni. Þeir Davíð Örn Símonarson, Kristján Ingi Mikaelsson, Ásgeir Vísir og Daníel Björn Sigurbjörnsson koma að hönnun og forritun appsins og eru þeir að flytjast til Bandaríkjanna til að kynna forritið fyrir fjárfestum. „Við erum að fara til San Francisco til þess að taka fjármagn inn í fyrirtækið. Við eigum bókaða fundi með fullt af fjárfestum og vorum við valdir til þess að vera eitt af átta fyrirtækjum sem fá að kynna sín fyrirtæki á stórri fjárfestingarráðstefnu í Kísil dalnum.“ „Við munum einnig gefa appið út á meðan á dvöl okkar stendur þannig fólk alls staðar í heiminum getur halað niður appinu í kringum aprílmánuð.“ „Við erum fjórir sem vinnum að þessu dag og nótt og erum heppnir að við erum með allt til reiðu innanborðs til þess að gera appið að veruleika. Á bak við okkur er einnig mjög sterkt ráðgjafaborð, en þar má nefna Þorstein [Baldur Friðriksson], framkvæmdastjóra Plain Vanilla, Bala Kamallakharan framkvæmdastjóra Green Qloud, Helgu Waage tæknistjóra Mobilitus og Ara Kristinn [Jónsson] rektor HR.“ Davíð segir að þeir félagar hafi lagt allt undir, sagt upp vinnum, vinum, fjölskyldum og kunningjum. „Við erum virkilega bjartsýnir á að þessar fórnir verði þess virði og að þessi ferð muni taka Blendin upp á næsta stig.“
Mest lesið Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Viðskipti innlent Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Viðskipti innlent Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Viðskipti innlent Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun „Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Flytja Friday's innan Smáralindar og fjölga stöðunum Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Íslandsbanki hækkar líka vexti verðtryggðra lána Séreign inn á húsnæðislán hafi nýst sterkefnuðum mest Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Ekki króna í þrotabúi Base parking Alma sótti tvo milljarða Árni verður hægri hönd Decks Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagkaup hefur áfengissölu í dag Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða Þungur róður hjá Samstöðinni Sjá meira