Skoðun

Allt fyrir ekkert

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Á mánudaginn er kvennafrídagurinn haldinn hátíðlegur í fertugasta og fyrsta sinn. Af því tilefni biðja leikskólakennarar í leikskólum landsins foreldra um að sækja börnin sín eilítið fyrr svo að kennararnir geti komið saman á baráttufundum.

Kannski finnst mörgum foreldrum það hálfgerð kvöð og jafnvel óþægindi að trufla þurfi daginn hjá þeim með þessum hætti.

Hvað eru þessir leikskólakennarar alltaf að vilja upp á dekk? Ekki nóg með að oft og tíðum þurfi að sækja börnin fyrr vegna manneklu og eilífra starfsdaga, þá á nú að slíta sundur vinnudag foreldranna í enn eitt skiptið með tilheyrandi óþægindum fyrir vinnustaði og atvinnurekendur.

Leikskólakennarar hafa hins vegar góðar ástæður til að koma saman á baráttufundum. Laun og aðbúnaður allur er samfélagi okkar því miður til skammar. Á sama tíma eru gerðar sífellt strangari kröfur um háskólamenntun og sérfræðiþekkingu. Er nema furða að leikskólastjórar eigi það til að auglýsa eftir starfskröftum á foreldrafundum.

Þekkið þið einhvern, einhvers staðar? er spurt.



Á sama tíma gera foreldrar sífellt meiri kröfur til fólksins sem að stórum hluta sér um uppeldi barna þeirra. Á foreldrafundum er kvartað undan því að ekki berist nægar upplýsingar úr starfinu heim til foreldranna, kennararnir eru gagnrýndir fyrir að tilkynna ekki um starfsdaga með nægjanlegum fyrirvara og jafnvel skammaðir fyrir að taka ekki nógu margar myndir af krökkunum. Þetta bætist við álagið sem fylgir starfinu.

Allir foreldrar vita að barnauppeldi er ekki eilífur dans á rósum. Ímyndið ykkur að börnin væru ekki þrjú heldur þrjátíu. Álagið á leikskólakennurum er meira en í flestum öðrum störfum.

Einstæðir foreldrar greiða nú um 15 þúsund krónur á mánuði fyrir heilan dag á leikskóla. Foreldrar í sambúð ríflega það. Á sama tíma byrja grunnlaun leikskólakennara og leiðbeinenda í réttum þrjú hundruð þúsund krónum. Mikið vantar á að endar nái saman.

Engan skyldi því undra að sífellt færri vilji gegna starfinu. Laun eru lág og starfsskilyrði erfið. Foreldrar ættu því að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gagnrýna leikskólakennara barna sinna. Í þeirra tilviki er langt í frá að laun endurspegli ábyrgð.

Er eitthvað að því að spyrja hvort ekki sé rétt að foreldrar greiði meira fyrir þjónustuna? Þá fyrst væri hægt að hækka laun, bæta aðstöðu og aðbúnað og gera kröfur til kennaranna.

Ef borgaryfirvöld hafa ekki hugrekki eða vilja til þess ættu aflögufærir foreldrar einfaldlega að taka höndum saman. Rétta hjálparhönd í manneklu, og sjá til þess með samskotum að börnin hafi leikföng og með því.

Í leikskólum landsins er unnið frábært starf, en þar eins og annars staðar sannast, að það er ekki hægt að ætlast til að fá allt fyrir ekkert.

Pistillinn birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Sjá meira


×