Innlent

Allt að fimm leikir íslenska liðsins í opinni dagskrá

Leiki íslenska landsliðið til úrslita verða samtals fimm leikir liðsins sýndi í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport
Leiki íslenska landsliðið til úrslita verða samtals fimm leikir liðsins sýndi í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport

Allt að fimm leikir með íslenska landsliðnu á heimsmeistramótinu í handbolta á næsta ári verða sýndir í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Forysta HSÍ er sátt við þessa niðurstöðu. Þetta kom fram í máli Ara Edwald, forstjóra 365, þegar vetrardagskrá Stöðvar 2 og sportrásanna var kynnt í Listasafni Reykjavíkur í kvöld.

Eins og frægt er orðið var í síðasta mánuði undirritaður samningar um sýningu næstu tveggja heimsmeistaramóta í handbolta á Stöð 2 Sport. Næsta mót verður haldið í Svíþjóð í janúar, en íslenska landsliðið verður þar í eldlínunni eins og landsmönnum er kunnugt.

Í samtali við fréttastofu sagði Ari að mun fleiri leikir verði sýndir frá heimsmeistaramótinu í Svíþjóð en áður hefur verið gert. „Við ætlum til að mynda að sýna alla leikina í riðlakeppninni."

Tveir leikir í riðlakeppninni opnir

Ísland leikur fimm leiki í riðlakeppninni. „Af þeim ætlum við að hafa tvo í opinni dagskrá. Þetta eru byrjunarleikurinn á móti Ungverjalandi og leikurinn gegn Japan. Við gerum ráð fyrir að Ísland komist í milliriðil og þar ætlum við að hafa einn leik Íslands í opinni dagskrá. Síðan vonast auðvitað allir til þess að Ísland spili um sæti og þar verður einn leikur landsliðsins til viðbótar opinn. Svo munum við hafa úrslitaleikinn í opinni dagskrá óháð því hvort Ísland spili til úrslita," segir Ari.

Ekki er skylt að sýna úrslitaleikinn í opinni dagskrá líkt og á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Ari Edwald, forstjóri 365.Mynd/GVA
Unnið í samvinnu við HSÍ



Ef Ísland leikur til úrslita verða alls fimm leikir landsliðsins sýndir í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. „Þetta er algjörlega okkar eigin ákvörðun. Við höfum verið að vinna þetta í samvinnu við HSÍ og forysta sambandsins er mjög ánægð með þessa niðurstöðu," segir Ari.

HM í Svíþjóð stendur frá 13.-30. janúar og mun Stöð 2 Sport gera mótinu góð skil auk þess sem valdir leikir verða sýndir í háskerpu. Mikil eftirvænting er fyrir mótið enda vann liðið silfur á síðustu Ólympíuleikum og brons á síðasta Evrópumóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×