Innlent

Allir dæmdir til fangelsis­vistar í skart­gripa­málinu

Bjarki Ármannsson skrifar
Gullsmiðjan stendur við Lækjargötu í Hafnarfirði.
Gullsmiðjan stendur við Lækjargötu í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm
Allir þrír sem ákærðir voru fyrir aðild að ráni í skartgripaversluninni Gullsmiðjunni í Hafnarfirði hlutu í dag fangelsisdóma við Héraðsdóm Reykjaness. Axel Karl Gíslason var dæmdur til að sæta fangelsi í fjögur ár og sex mánuði, Ásgeir Heiðar Stefánsson í tvö ár og sex mánuði og Mikael Már Pálsson í fimmtán mánuði.

Þremenningarnir eiga allir langan sakaferil að baki. Til frádráttar refsingu Axels Karls kemur gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá því 23. október 2015.

Þótti ekki sannað að ránið hefði verið skipulagt

Þeir Axel Karl og Ásgeir Heiðar eru báðir sakfelldir fyrir að hafa rænt Gullsmiðjuna þann 22. október í fyrra en ekki fyrir það að hafa skipulagt að fremja ránið. Það þótti ekki sannað fyrir dómi. Þær rændu verslunina vopnaðir exi og neyðarhamri og höfðu á brott með sér skartgripi fyrir tæpar tvær milljónir króna.

Mikael Már beið þeirra við Grindavíkurafleggjarann á Reykjanesbraut og tók þá þar upp í bíl sinn að ráninu loknu. Hann var ákærður fyrir að hafa tekið þátt í að skipuleggja ránið en dómurinn taldi ósannað að hann hefði haft aðra aðkomu að málinu en að verða við beiðni hinna tveggja um að hitta þá og aka þeim til Keflavíkur.

Var hann þó sakfelldur fyrir að liðsinna þeim, þar sem hann vissi að þeir hefðu framið refsiverða háttsemi eftir að þeir stigu inn í bíl til hans. Mikael Már var á reynslulausn þegar hann sótti þá Axel Karl og Ásgeir Heiðar.

Mikael Már beið hinna tveggja við Grindavíkurafleggjarann á Reykjanesbraut og tók þá þar upp í bíl sinn að ráninu loknu.Vísir
Skaut úr loftbyssu að lögreglumönnum

Þá var Axel Karl einnig sakfelldur fyrir tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar og brot gegn valdstjórninni fyrir það að hafa lagt á flótta frá fimm lögreglumönnum að kvöldi dagsins sem ránið var framið  og skotið að þeim úr loftskammbyssu. Lögreglumennirnir höfðu haft upp á Axel vegna grums um að hann hefði komið að ráninu.

Í skýrslu lögreglu segir að Axel hafi ekki hlýtt skipunum lögreglu um að fara niður á hnén og hafa hendur sýnilegar, heldur lagt á flótta, beint loftbyssunni að þeim og skotið þremur skotum. Axel hélt því fram að hann hefði ekki áttað sig á því að mennirnir sem kölluðu að honum væru lögreglumenn og að hann hefði ekki beint byssunni að þeim, heldur skotið upp í loftið.

Mikael Már var einnig kærður fyrir brot gegn vopnalögum þar sem lásbogi fannst í vörslum hans við handtöku þann 29. október. Ekki þótti þó sannað að hann ætti lásbogann. Vitni greindu frá því fyrir dómi að mikill gestagangur hefði verið í íbúðinni þar sem Mikael Már var handtekinn og mikil óregla. Kannaðist hvorki Mikael Már né vinir hans við að eiga lásbogann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×