Handbolti

Alfreð og félagar með stórsigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð gat leyft sér að fagna í gær.
Alfreð gat leyft sér að fagna í gær. Vísir/Getty
Kiel var í stuði gegn Metalurg í Meistaradeildinni í handbolta í gærkvöldi, en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar fögnuðu stórsigri, 42-27.

Staðan var 22-15 fyrir Þjóðverjana í hálfleik og þeir spýttu enn betur í lófana í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan fimmtán marka sigur.

Domagoj Djuvnak var markahæstur með átta mörk, Canellas Reixach og Marko Vujin skoruðu sjö mörk hvor. Aron Pálmarsson spilaði ekki með vegna meiðsla aftan í læri.

Alfreð og lærisveinar eru því með fullt hús stiga eftir leikina þrjá, en Metalurg er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×