Alfreð náði yfirhöndinni í einvíginu gegn Guðmundi

Vísir Handbolti 23. febrúar 2012 06:00
Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson stýra tveimur af stærstu handboltaliðum heims. Alfreð hefur náð frábærum árangri með Kiel í vetur en liðið hafði betur gegn Guðmundi og lærisveinum hans í gær.
Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson stýra tveimur af stærstu handboltaliðum heims. Alfreð hefur náð frábærum árangri með Kiel í vetur en liðið hafði betur gegn Guðmundi og lærisveinum hans í gær. Nordic Photos / Getty Images
Kiel er enn með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni eftir átta marka sigur á Rhein-Neckar Löwen á heimavelli í gær, 33-25. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel og hefur náð ótrúlegum árangri með liðið á tímabilinu en liðið hefur unnið 21 leik á tímabilinu. Ekkert lið hefur byrjað betur í sögu deildarinnar.

Kiel vann síðustu þrjá leiki sína á síðasta tímabili og sigrarnir eru því orðnir 24 í röð.
Alfreð og Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Löwen, voru búnir að mætast fimm sinnum með lið sín fyrir leikinn í gærkvöldi og voru með jafnan árangur. Lið Alfreðs var búið að vinna tvo leiki, lið Guðmundar var búið að vinna tvo leiki og einum leik hafði lyktað með jafntefli.

Rhein-Neckar-Löwen vann báða deildarleiki liðanna í fyrra en Alfreð er nú kominn með undirtökin í einvígi þessara kappa sem léku lengi saman í íslenska landsliðinu á sínum tíma.

Rhein-Neckar Löwen komst yfir, 2-1, í gær en þá tók tékkneska skyttan Filip Jicha leikinn í sínar hendur. Hann skoraði fjögur fyrstu mörk Kiel í leiknum og kom sínum mönnum yfir. Heimamenn létu forystuna aldrei af hendi eftir það og skoraði Jicha alls tíu mörk í leiknum.


Alfreð náði yfirhöndinni í einvíginu gegn Guðmundi
Skoruðu ekki í tíu mínútur
Miklu munaði um tíu mínútna kafla um miðbik hálfleiksins þar sem Löwen náði ekki að skora eitt einasta mark. Ekkert gekk upp í sóknarleik liðsins, sama hvað Guðmundur reyndi. Að sama skapi gekk allt upp hjá Kiel og skipti engu hvaða leikmönnum Alfreð tefldi fram hverju sinni.

Kiel brunaði fram úr og náði átta marka forystu, 14-6. Staðan var svo 17-9 í hálfleik en leikurinn var aldrei spennandi í síðari hálfleiknum. Aron Pálmarsson fékk sínar mínútur og skoraði eitt mark en Róbert Gunnarsson náði ekki að komast á blað hjá Löwen, þó svo að hann hafi mikið spilað í seinni hálfleik. Uwe Gensheimer var markahæstur hjá Löwen með átta mörk í gær.


Mánuður í næsta toppleik hjá Kiel
Það er erfitt að sjá fyrir hvort og þá hvenær Kiel tapar leik á tímabilinu. Það er rúmur mánuður í að liðið mæti næst einu af efstu liðum deildarinnar en þá koma Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin í heimsókn. Berlínarrefirnir eru nú í öðru sæti deildarinnar.

Löwen er nú þremur stigum frá þriðja sæti deildarinnar sem er það síðasta sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það er því hörð barátta fram undan fyrir Guðmund og félaga ef liðið ætlar sér að komast í keppni þeirra bestu.

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 17:15

Árni Þór semur við Friesenheim

Örvhenta skyttan Árni Þór Sigtryggsson mun enn á ný söðla um í Þýskalandi í sumar en hann ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 13:00

Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu

Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggj...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 19:00

Ágúst Þór búinn að velja landsliðshópinn

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna í handknattleik, hefur valið 20 leik...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 17:43

Refirnir frá Berlín hökkuðu Sverre og félaga í sig

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin styrktu stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrv...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:59

Flottur útisigur hjá Hannover

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf vann góðan útisigur á Hildesheim í dag og reif sig um le...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:52

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 12:40

Kiel í litlum vandræðum með Hamburg | Stefnir í fullkomið tímabil

Það stefnir svo sannarlega í fullkomið tímabil hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel e...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 00:05

Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum

Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson ú...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 18:36

Flott endurkoma hjá Kára og félögum

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar nældu á stig á útivelli er þeir sóttu TuS ...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:33

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrs...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:21

Gleði á Hlíðarenda - myndaveisla

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í handknattleik í dag er þær unnu afar sannfærandi sigur á...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:53

Hrafnhildur: Verð bara betri með árunum

"Ég verð aldrei þreytt á því að lyfta þessum bikar, enda er ég með frekar góða upphandlegg...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:50

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-21 | Valur Íslandsmeistari

Valur varð í dag Íslandsmeistari í handknattleik kvenna eftir frábæran sigur á Fram, 24-21...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:29

Rúnar og félagar voru flengdir

Rúnar Kárason skoraði eitt mark þegar lið hans, Bergischer, var flengt af Flensburg með sa...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 15:40

Einar hættur | Halldór Jóhann tekur við Fram-liðinu

Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram, lýsti því yfir eftir leikinn gegn Val í dag að ha...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 08:00

Fyrsti oddaleikurinn um titilinn í tíu ár

Það er risaleikur í Vodafone-höllinni klukkan 14.00 í dag þegar Íslandsmeistarar Vals taka...  

Meira
Handbolti 11. maí. 2012 21:34

Tandri og Bjarki búnir að skrifa undir nýjan samning við HK

Tandri Már Konráðsson og Bjarki Már Elísson, lykilmenn í Íslandsmeistaraliði HK, skrifuðu ...  

Meira
Handbolti 11. maí. 2012 19:23

Björgvin Páll í markið í seinni hálfleik og Magdeburg vann

Björgvin Páll Gústavsson og félagar hans í Magdeburg héldu áfram góðu gengi sínu á heimave...  

Meira
Handbolti 10. maí. 2012 16:00

Haukar framlengja við lykilmenn

Bikar- og deildarmeistarar Hauka eru á fullu þessa dagana við að ganga frá sínum málum fyr...  

Meira
Handbolti 09. maí. 2012 22:43

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 18-17 | Stella tryggði Fram oddaleik

Stella Sigurðardóttir var hetja Framara í kvöld þegar Framkonur tryggðu sér oddaleik á mót...  

Meira
Handbolti 09. maí. 2012 22:15

Oddaleikur framundan hjá Fram og Val - myndir

Valur og Fram munu spila hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna...  

Meira
Handbolti 09. maí. 2012 15:30

Þorgrímur Smári semur við Val

Valsmenn hafa fengið fínan liðsstyrk í handboltanum því miðjumaðurinn Þorgrímur Smári Ólaf...  

Meira
Handbolti 09. maí. 2012 13:57

Einar Rafn í FH | Fram sýndi lítinn áhuga á að halda honum

Hægri hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson er búinn að skrifa undir eins árs samning við FH en...  

Meira
Handbolti 09. maí. 2012 06:00

Aron Rafn hafnaði tilboði frá GUIF

Erlend félög eru farin að kroppa í landsliðsmarkvörðinn Aron Rafn Eðvarðsson sem spilar me...  

Meira
Handbolti 08. maí. 2012 21:45

Kasper Hvidt og Lars Jörgensen ætla ekki að gefa kost á sér á ÓL

Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfara Dana, tókst ekki að fá AGK-reynsluboltana Kasper Hvidt og ...  

Meira
Handbolti 08. maí. 2012 18:42

Jóna Björg: Einar Andri hefur lært mikið á þessum tveimur árum með Kristjáni

Jóna Björg Björgvinsdóttir, formaður Handknattleiksdeildar FH, staðfesti það við Vísir í k...  

Meira
Handbolti 08. maí. 2012 18:22

Kristján Arason hættur með FH

Kristján Arason verður ekki áfram þjálfari karlaliðs FH í handbolta en hann tilkynnti leik...  

Meira
Handbolti 08. maí. 2012 11:12

Guðlaugur leggur skóna á hilluna

Húsavíkurfjallið í vörn Akureyrar undanfarin ár, Guðlaugur Arnarsson, hefur lagt skóna á h...  

Meira
Handbolti 07. maí. 2012 22:45

Alfreð búinn að finna eftirmann Omeyer

Alfreð Gíslason, þjálfari þýsku meistaranna í Kiel, virðist vera búinn að finna eftirmann ...  

Meira
Handbolti 07. maí. 2012 22:05

Framkonur gengu á vegg í Vodafone-höllinni - myndir

Valskonur eru komnar í lykilstöðu í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í hand...  

Meira
Handbolti 07. maí. 2012 21:42

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 23-17 | Valskonur komnar í 2-1

Valur er einum sigri frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta þriðja...  

Meira
Handbolti 07. maí. 2012 12:46

Elías Már og Jón Þorbjörn í Hauka

Deildar- og bikarmeistarar Hauka fengu góðan liðsstyrk í dag þegar Elías Már Halldórsson o...  

Meira
Handbolti 07. maí. 2012 06:00

Myndasyrpa af fögnuði HK-inga

HK varð í gær Íslandsmeistari karla í handbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið sópa...  

Meira
Handbolti 06. maí. 2012 17:17

Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 26-28 | HK Íslandsmeistari í fyrsta sinn

HK tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í fyrsta sinn með því að leggja F...  

Meira
Handbolti 06. maí. 2012 16:02

Guif komst ekki í úrslitaleikinn

Kristján Andrésson og lærisveinar hans í sænska liðinu Guif eru úr leik í úrslitakeppninni...  

Meira
Handbolti 06. maí. 2012 15:37

Kiel bikarmeistari í Þýskalandi | Ótrúleg sigurganga

Sigurganga Kiel hélt áfram í dag þegar að liðið varð bikarmeistari í Þýskalandi eftir sigu...  

Meira
Handbolti 05. maí. 2012 14:41

Kiel í úrslit þýsku bikarkeppninnar

Kiel tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar eftir góðan sigur á Hambur...  

Meira
Handbolti 05. maí. 2012 08:00

Markverðir HK hafa varið fleiri skot í öllum leikjunum

HK-ingar eru einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu karlahandboltaliðs féla...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 22:15

Valur jafnaði einvígið í háspennuleik - myndir

Valur jafnaði í kvöld einvígið gegn Fram í úrslitum N1-deildar kvenna í 1-1 í háspennuleik...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 22:14

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 22-23 | Staðan í einvíginu er 1-1

Valsarar jöfnuðu metin úrslitaeinvígi sínu í N1-deild kvenna í kvöld í háspennuleik gegn F...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 21:30

Heldur mögnuð sigurganga Heidi Löke áfram?

Heidi Löke, línumaður norska kvennalandsliðsins í handbolta sem og ungverska liðsins Györ,...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 19:53

Löwen tapaði mikilvægum stigum á heimavelli

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar hjá Rhein-Neckar Löwen náðu ekki að komast upp í fjórð...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 19:15

Jesper Nielsen lætur einn leikmann AG heyra það

Jesper "Kasi" Nielsen, eigandi danska stórliðsins AG frá Kaupmannahöfn, er allt annað en s...  

Meira
Handbolti 04. maí. 2012 16:15

Samantekin ráð hjá Val og Fram að tala ekki við Rúv

Það er mikil óánægja innan handboltahreyfingarinnar með frammistöðu Rúv í úrslitakeppninni...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Alfreð náði yfirhöndinni í einvíginu gegn Guðmundi