Handbolti

Alfreð mælir með bókalestri fyrir leikmenn sína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, segir lestur góðra bóka skipan stóran sess í sínu lífi. Hann mælir með því að leikmenn sínir lesi reglulega.

Þetta sagði hann í viðtali við staðarblaðið Kieler Nachrichten á dögunum en eftir stutt sumarfrí á Íslandi á dögunum er hann byrjaður að undirbúa lið sitt fyrir nýtt keppnistímabil í þýsku úrvalsdeildinni.

Meðal þess sem kemur fram í viðtalinu er að Alfreð hafi kynnt Aron Pálmarsson fyrir bókum Einars Kárasonar, sér í lagi þríleikinn um lífið í bröggunum í Reykjavík á eftirstríðsárunum (Þar sem djöflaeyjan rís, Gulleyjan og Fyrirheitna landið).

„Einar er nokkuð stuttur, spennandi og gefur lesandanum innsýn í sögu Íslands,“ sagði Alfreð í viðtalinu. „Og mér finnst mikilvægt að leikmenn mínir lesi líka bækur.“

Sjálfur segist Alfreð grípa í bók við hvert tækifæri sem gefst. „Bestu hugmyndirnar koma þegar maður sinnir einhverju allt öðru,“ segir Alfreð sem lærði sögu í háskóla.

Viðtalið má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×