Fótbolti

Alfreð í byrjunarliði Augsburg | Lewandowski með þrennu í fyrri hálfleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð í leiknum í kvöld.
Alfreð í leiknum í kvöld. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem tryggði sér sæti í 16-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar með 0-2 sigri á Ravensburg í kvöld.

Alfreð spilaði fyrstu 69 mínúturnar en hann var tekinn af velli skömmu eftir að Raúl Bobadilla skoraði annað mark Augsburg. Suður-Kóreumaðurinn Ja-Cheol Koo skoraði fyrra mark liðsins á 29. mínútu.

Robert Lewandowski skoraði þrennu í fyrri hálfleik þegar Bayern München rúllaði yfir Jena, 0-5, á útivelli.

Arturo Vidal og Mats Hummels skoruðu hin tvö mörk Bayern sem vann bikarinn á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×