Fótbolti

Alfreð: Fæ töluvert færri færi en í fyrra

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð skoraði mark Íslands í 1-1 jafnteflinu við Úkraínu í fyrsta leik íslenska liðsins í undankeppni HM 2018.
Alfreð skoraði mark Íslands í 1-1 jafnteflinu við Úkraínu í fyrsta leik íslenska liðsins í undankeppni HM 2018. vísir/epa
Alfreð Finnbogason segir að það reyni á breiddina í íslenska fótboltalandsliðinu í leikjunum gegn Finnlandi og Tyrklandi í undankeppni HM 2018.

Kolbeinn Sigþórsson er frá vegna meiðsla og þá er óvíst með þátttöku fleiri leikmanna. Aðrir leikmenn, sem hafa verið í smærri hlutverkum, gæti því þurft að taka aukna ábyrgð í leikjunum tveimur sem framundan eru.

„Það er rétt. Þetta var magnað í síðustu undankeppni og á EM, hvað meiðsli og leikbönn varðar. Við gátum alltaf spilað á sama liðinu,“ sagði Alfreð í samtali við Tómas Þór Þórðarson á æfingu landsliðsins í Egilshöll í kvöld.

„Núna reynir á breiddina og ég held að það sé gott inni á milli, að sjá hvernig staðan á liðinu er. Kannski gefur þetta liðinu fleiri möguleika í framtíðinni. Þetta er eitthvað sem þjálfararnir þurfa að útfæra og það verður forvitnilegt að sjá hvernig það gengur,“ bætti framherjinn við.

Hann segir að það sé eitt að spila vináttulandsleiki og annað að byrja alvöru keppnisleiki þar sem allt er undir.

„Æfingaleikir og keppnisleikir eru ekki alveg það sama. Það vilja allir spila mikilvægu leikina. Við fáum örugglega svör við ýmsum spurningum þegar leikmenn fá eldskírn í alvöru leikjum,“ sagði Alfreð sem leikur með Augsburg í Þýskalandi.

Liðið hefur farið þokkalega af stað í vetur og er með sjö stig eftir fyrstu sex umferðirnar í þýsku deildinni. En er Alfreð ánægður með byrjunina?

„Já, að mörgu leyti. Ég væri alveg til í að vera kominn með 10 mörk og fullt hús stiga. Við erum með nýjan þjálfara og nýjan leikstíl sem er svolítið öðruvísi frá því í fyrra. Það hefur tekið tíma fyrir mig og liðið að komast í takt við það,“ sagði Alfreð sem er kominn með eitt mark á tímabilinu.

„Við erum á pari. Persónulega er ég að vinna meira fyrir liðið og fæ töluvert færri færi en í fyrra. Svo lengi sem ég spila hef ég ekki teljandi áhyggjur af því. Ef ég held áfram að taka hlaupin og spila fleiri mínútur koma mörkin.“

Alfreð og félagar mættu Werder Bremen, sem Aron Jóhannsson leikur með, á dögunum. Sá síðarnefndi kom Bremen yfir með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Áður en Aron steig á punktinn gekk Alfreð til markvarðar Augsburg, Marwin Hitz, og hvíslaði einhverju að honum.

„Ég sagði við hann að ég vissi ekkert hvert hann myndi skjóta,“ sagði Alfreð um þessa sálfræðibrellu sína.

„Ég ætlaði aðeins að rugla í hausnum á Aroni. Ég veit það sjálfur þegar þú ert að taka víti og einhver gerir svona ferðu að efast. Ég var ekki með neinar innherjaupplýsingar en markvörðurinn hlustaði allavega ekki á mig. Þetta voru ekki góð fyrirmæli,“ sagði Alfreð að endingu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×