Handbolti

Alexander sterkur í stórsigri Löwen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander Petersson.
Alexander Petersson. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen heldur þriggja stiga forskoti í þýsku úrvalsdeildinni eftir stórsigur í kvöld.

Þá vann Löwen útisigur, 19-36, gegn Eisenach. Uwe Gensheimer skoraði 12 mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson 6. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað.

Ólafur Bjarki Ragnarsson náði ekki að skora fyrir Eisenach sem er í fallsæti í deildinni.

Kiel er fjórum stigum á eftir Löwen en Kiel mátti hafa fyrir sigrinum gegn TuS N-Lübbecke í kvöld.

Lokatölur þar 28-26 fyrir Kiel. Marko Vujin skoraði 7 mörk fyrir Kiel og Domagoj Duvnjak 6.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×