Handbolti

Alexander: Danir geta orðið heimsmeistarar

Arnar Björnsson í Katar skrifar
Alexander Petterson var bestur í íslenska liðinu í kvöld þegar liðið tapaði á móti Dönum í sextán liða úrslitunum á HM í Katar.  

Alexander skoraði 7 mörk úr 12 skotum og lék í 55 mínútur en aðeins Guðjón Valur Sigurðsson var lengur inná en fyrirliðinn fór aldrei af velli og lék í 60 mínútur.

„Þetta var eins og á móti Svíum, sóknarleikurinn gékk ekki og markvörðurinn varði allt sem kom á markið.  Það var erfitt að skora í kvöld," sagði Alexander.

Af hverju gékk það svona illa?

„Ég veit það ekki.  Á móti Svíum spiluðum við Aron Pálmarsson og það gékk ekki vel og við klúðruðum mörgum færum því við vorum ekki að spila saman.  Núna var erfitt að komast í skot og við skoruðum ekki mörg mörk fyrir utan 9 metrana," sagði Alexander.

Hvað er besta liðið sem þið hafið mætt í keppninni?

„Danir eru bestir og ég held að þeir geti orðið meistarar," sagði Alexander.

Allt viðtalið við Alexander má finna hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×