Viðskipti innlent

Alcoa Fjarðaál og Eimskip endurnýja samninga um hafnarvinnu

Atli Ísleifsson skrifar
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, og Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, við undirritun í dag.
Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, og Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, við undirritun í dag.
Alcoa Fjarðaál hefur endurnýjað samninga við Eimskipafélagið að undangengnu alþjóðlegu útboði, um hafnarvinnu fyrir álverið við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði til næstu fimm ára.

Í fréttatilkynningu segir að Eimskip hafi annast þessa þjónustu fyrir Alcoa Fjarðaál allt frá gangsetningu álversins árið 2007.

„Eimskip hefur lagt í rúmlega tveggja milljarða króna fjárfestingu á Austurlandi í tengslum við þjónustuna fyrir Alcoa Fjarðaál og vegna annarrar starfsemi félagsins á svæðinu. Hjá Eimskip á Austurlandi starfa nú um 100 manns við frágang á vörum Fjarðaáls til útflutnings, hafnarvinnu, gáma- og innanlandsflutninga,“ segir í tilkynningunni.

Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, og Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélagsins, undirrituðu nýja samninga í mötuneyti álversins í dag, fimmtudag.

„Við það tækifæri lýstu þau almennri ánægju með áframhald samstarfsins, enda verið afar farsælt allt frá því er Fjarðaál hóf starfsemi hér á landi. Gylfi sagði engan vafa leika á því hve miklu máli Fjarðaál hefur skipt fyrir íslenskt samfélag og hjálpað til við að styrkja innviði þess, ekki síst á Austurlandi.

Með tilkomu Mjóeyrarhafnar hafa flutningar til og frá Austurlandi aukist verulega, en árlega fara um 1,5 milljón tonna af vörum um höfnina, sem er ein sú stærsta á landinu í vörumagni talið,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×