Innlent

Albönsku fjölskyldurnar með veiku drengina lenda á Íslandi í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Arjan litli ásamt fjölskyldu sinni.
Arjan litli ásamt fjölskyldu sinni. vísir
Albönsku fjölskyldurnar tvær sem sendar voru úr landi þann 10. desember síðastliðinn og sóttu í kjölfarið um íslenskan ríkisborgararétt, sem Alþingi veitti þeim þann 19. desember, lenda í Keflavík eftir hádegi í dag.

Um er að ræða tvær fjögurra manna fjölskyldur, Pepaj-fjölskylduna og Phellum-fjölskylduna. Í báðum fjölskyldum eru langveik börn, þeir Kevi, sem er með ólæknandi slímseigjusjúkdóm, og Arjan, sem er með hjartagalla.

Það vakti vægast sagt mikla reiði í samfélaginu þegar þeim var vísað úr landi ásamt fjölskyldum sínum þar sem mörgum blöskraði að langveik börn skyldu send héðan, og það til Albaníu þar sem afar umdeilt er hvort heilbrigðiskerfið geti veitt drengjunum þá þjónustu sem þeir þurfa.

Umboðsmaður Alþingis sendi Útlendingastofnun bréf

Útlendingastofnun synjaði fjölskyldunum um hæli hér á landi en málsmeðferð stofnunarinnar sætti mikilli gagnrýni. Vildu margir meina að hægt hefði verið að veita fjölskyldunum dvalarleyfi af mannúðarástæðum vegna veikinda drengjanna, en slíkt er heimilt samkvæmt lögum.

Óskaði umboðsmaður Alþingis meðal annars eftir almennum upplýsingum frá Útlendingastofnun um málsmeðferð og rannsókn umsókna um svokölluð mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum, en eftir að fjölskyldurnar fengu ríkisborgararétt áréttaði stofnunin að hún hefði farið í einu og öllu að lögum við meðferð hælisumsóknar fjölskyldnanna.

Söfnuðu 4,5 milljónum til styrktar fjölskyldunum

Á þeim tæpa mánuði sem liðinn er frá því að fjölskyldurnar fengu ríkisborgararétt hefur hópur fólks, með Hermann Ragnarsson í broddi fylkingar, unnið að undirbúningi komu þeirra en hann aðstoðaði fjölskyldurnar einnig við að sækja um ríkisborgararétt.

Setti hann meðal annars af stað söfnun til stuðnings þeim og söfnuðust 4,5 milljónir króna sem nýtast meðal annars við að greiða flug frá Albaníu til Munchen og gistingu þar auk flugs frá Munchen til Berlínar. Frá Berlín fljúga fjölskyldurnar síðan hingað til lands í boði WOW air.

Þar sem fjölskyldurnar eru nú íslenskir ríkisborgarar fá þau ekki sambærilega aðstoð eins og til dæmis kvótaflóttamenn sem hingað koma. Til að mynda komast þær ekki inn í heilbrigðiskerfið fyrr en eftir sex mánuði en mikilvægt er að Kevi og Arjan fái heilbrigðisþjónustu. Því gætu þeir mögulega þurft að fá einhvers konar undandþágu frá lögum um sjúkratryggingar en hvort af því verði liggur ekki fyrir.

Eins og áður sagði lenda fjölskyldurnar á Keflavíkurflugvelli eftir hádegi í dag. Vísir verður að sjálfsögðu á staðnum og flytur fréttir af komu þeirra til landsins.


Tengdar fréttir

Öll gögn Albananna eru komin í hendur Alþingis

Pepoj-fjölskyldan er stödd úti í Skode í Albaníu og er afskaplega fegin stuðningi sem hún hefur fengið frá íslensku samfélagi. Til að komast til Íslands aftur hefur hún þurft að afla gagna, svo sem sakavottorða, hjúskaparvottorðs og fæðingarvottorða.

Pepaj fjölskyldan grét af gleði þegar hún fékk fréttirnar

Albönsku fjölskyldurnar tvær sem sendar voru úr landi í liðinni viku fá íslenskan ríkisborgararétt og koma hingað í janúar. Önnur fjölskyldan segist vera gríðarlega þakklát og að fréttirnar séu besta jólagjöf sem Kevi sonur þeirra hefði getað fengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×