Handbolti

Álaborg fagnaði titlinum með stæl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron Kristjánsson er að gera frábæra hluti með Álaborg.
Aron Kristjánsson er að gera frábæra hluti með Álaborg. mynd/álaborg
Lið Arons Kristjánssonar, Álaborg, varð deildarmeistari fyrr í kvöld og fagnaði því svo með því að vinna öruggan sigur, 26-22, á Kolding.

Magnaður árangur og vel við hæfi að enda gott kvöld á því að valta yfir liðið sem hefur haft yfirburði síðustu ár.

Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Álaborg í leiknum en Arnór Atlason og Stefán Rafn Sigurmannsson létu eitt mark duga hvor.

Sander Sagosen markahæstur í liði Álaborgar með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×