Innlent

Akureyringar standa einir að rekstri Hofs

Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ríkið ekki munu styrkja rekstur Hofs, sem kostar um 330 milljónir á ári. Mynd/Sunna
Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ríkið ekki munu styrkja rekstur Hofs, sem kostar um 330 milljónir á ári. Mynd/Sunna
„Við verðum þá að mæta kostnaðinum með peningum úr vasa skattgreiðenda á Akureyri, sem er mjög ósanngjarnt," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar á Akureyri. Geir segir ríkið ekki munu taka þátt í rekstrarkostnaði Menningarhússins Hofs, heldur einungis byggingaframkvæmdinni, eins og kveðið er á um í samningnum frá árinu 2003.

Ríkið styrkti framkvæmdina um 950 milljónir, en heildarkostnaður endaði í 3,3 milljörðum króna. Árlegur rekstrarkostnaður Hofs er um 330 milljónir og leggur Akureyrarbær þar til 56 milljónir króna. „Ríkið er ekki að brjóta neina samninga, en þetta snýst um sanngirni og jafnrétti. Ráðamenn verða að átta sig á að landsbyggðinni blæðir," segir Geir.

Akureyrarbær fær 120 milljónir króna á ári til menningarreksturs. Á ársgrundvelli verður framlag ríkissjóðs til Tónlistarhússins Hörpu um 510 milljónir króna og framlög til Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru hækkuð um 45 milljónir, í 717 milljónir króna, vegna flutninga hennar til Hörpu og þar af leiðandi hærri húsaleigu.

„Þetta er mikið áhyggjuefni og vissulega ósanngjarnt," segir Geir. „Við vitum öll að peningar eru af skornum skammti, en boltinn er hjá ríkinu. Þetta er eilíf valdabarátta og við vonum bara að ráðamenn muni skipta um skoðun." - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×