Viðskipti innlent

Áhrif álvers á Grundartanga á lífríki óveruleg

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Umhverfisvöktun vegna álversins á Grundartanga sýnir að áhrif álvers Norðuráls á lífríkið eru óveruleg.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli, en hægt er sjá skýrslu um umhverfisvöktunina hér.

Í tilkynningunni segir að niðurstöður fyrir árið 2013 sýna að Norðurál er vel undir öllum viðmiðunarmörkum sem fyrirtækinu er sett í starfsleyfi og reglugerðum. Þeir þættir sem eru vaktaðir eru andrúmsloft, úrkoma, ferskvatn, kræklingur, sjávarset, gras, lauf, barr, sauðfé og hross.

Rannsóknirnar eru gerðar af Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun, Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri aðilum. Þá segir ennfremur í tilkynningunni að þær kröfur sem settar séu á Norðurál séu einhverjar þær ströngustu í heiminum.

„Þessi góði árangur er alls ekki sjálfgefinn. Til að hann náist þarf reksturinn að vera góður og í jafnvægi. Það kallar á öfluga liðsheild, hæfni og kunnáttu starfsfólks Norðuráls og að búnaður uppfylli ströngustu gæðakröfur.  Við erum sérstaklega ánægð með þessar niðurstöður umhverfisvöktunarinnar,” segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls í tilkynningunni.

Sérstaklega vekur athygli að losun flúors frá álverinu fer lækkandi þrátt fyrir að framleiðsla hafi aukist um átta þúsund tonn í fyrra.

Þá er meðalstyrkur brennisteinsdíoxíðs, eða SO2, frá álverinu undir viðmiðunarmörkum.

Mynd/Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×