Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Sporðdreki: Sterkur hugur og sjálfstæði

Sigga Kling skrifar
Elsku Sporðdrekinn minn. Þú ert eins og demantur í mannsorpinu og það er mjög mikilvægt að slípa demant til þess að hann skíni.

Þú átt það til að vera svolítið öfgafullur, hvort sem það er í mataræðinu eða tilfinningasukki. Það getur dregið úr þér kjarkinn til þess að sjá að þú hefur það sem þarf.

Hættu að fara í öfuga átt við það sem þig langar. Ég sé það í þér að þú hrindir þér niður þegar best gengur og reynir sjálfur að stöðva þig þegar þú ert að komast í mark. Hættu að endurskoða þig og farðu algjörlega eftir því að líta hvorki til hægri né vinstri.

Það er ekki í stöðunni að láta aðra gera þig hamingjusaman. Þú einn berð þessa ábyrgð og ímyndar þér annað.

Það er eins og að þú sért að fá einhvers konar verðlaun eða viðurkenningu fyrir það sem þú ert að gera. Það er mikilvægt að þú finnir það í sjálfri þér að vera stoltur af þér og bíða ekki eftir því að fá hrós frá öðrum því þá gætir þú orðið fyrir vonbrigðum. Það er vart hægt að segja að í nokkru merki sjái ég eins ólíkar manneskjur og ykkur Sporðdrekana. Þið eruð með svo sterkan huga. En ef þú verður leiður þá er hætta á að þú hangir of lengi á vitlausum vegarhelmingi og það skapar stórhættu.

Það er svo mikilvægt að þú sért sjálfstæður og núna er orkan að gefa þér möguleika á að koma peningamálunum í jafnvægi – en ástæðan fyrir spennu í fjármálunum er sú að þú ert svo dásamlega eyðslusamur. Það er gott að spandera smá til að hressa sálina, svo notaðu peningana sem þú ert að fara að afla í orku og til að stýra því að kvíðinn nái ekki tökum á þér, þú mikli snillingur. Þú bæði ert með svo mjúkt hjarta og fallegar tilfinningar en það kemur fyrir að þú sért óþarflega hreinskilinn sem getur skapað leiðindi.

Hafðu húmor fyrir sjálfum þér því það er mest aðlaðandi og fyrir þig er besta hugleiðslan góður svefn og streitulaust umhverfi. 

Mottó: Hugsa minna, gera meira.

Frægir Sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona. 


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Daðraðu við lífið

Dásamlegi Fiskur. Það sem einkennir þig mest þessa dagana er að þú ferð bara þínar eigin leiðir. Það kemur þó fyrir að þér finnist þú vera svo hjálparlaus að þú gætir alveg misst máttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×