Handbolti

Afturelding fær heimaleiki á móti Haukum, Val og ÍBV

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ernir Hrafn Arnarson reynir skot í kvöld.
Ernir Hrafn Arnarson reynir skot í kvöld. Vísir/Anton
Handknattleikssamband Íslands er búið að raða upp þriðja umgangi Olís-deildar karla en öll lið eru nú búin að mætast heima og úti.

Þriðja hlutanum er raðað upp út frá gengi liðanna í Olís-deildinni til þessa en mikil spenna er út um alla töflu og því skiptir miklu máli á móti hverjum liðin fá heimaleiki í þessum þriðja hluta.

Topplið Aftureldingar fær heimaleiki á móti þremur af liðunum í fjórum næstu sætum eða öllum liðum nema FH. Afturelding fær heimaleiki á móti Haukum, Val, ÍBV, Gróttu og Stjörnunni.

Afturelding er einu stigi á undan Haukum, þremur stigum á undan FH og sex stigum á undan Val og ÍBV.

Haukarnir fá heimaleiki á móti Selfoss, Stjörnunni, Gróttu, Akureyri og FH en FH-liðið verður á heimavelli á móti Akureyri, Fram,. Gróttu, Aftureldingu og Selfossi.

Eyjamenn sem unnu topplið Aftureldingar með sannfærandi hætti á dögunum fá heimaleiki  á móti Gróttu, FH, Stjörnunni, Haukum og Akureyri.

Heimaleikir Valsmanna, sem hafa ekki byrjað alltof vel eftir HM-fríið, eru á móti FH, Stjörnunni, Haukum, Gróttu og ÍBV.

Þriðji hlutinn hefst 16. febrúar næstkomandi og lýkur síðan með 27. umferðinni 3. apríl næstkomandi.  Það er hægt að sjá alla leikina með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×