Aftur tryggði Vela West Brom jafntefli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. febrúar 2011 21:57 Vela skorar hér jöfnunarmarkið í kvöld. Nordic Photos / AFP
Carlos Vela var aftur hetja West Brom þegar að liðið gerði 1-1 jafntefli við Stoke á útivelli í kvöld. Rory Delap hafði komið Stoke yfir með skallamarki af stuttu færi eftir hornspyrnu Jermaine Pennant í upphafi síðari hálfleiks en Vela jafnaði metin skömmu fyrir leikslok. Markið skoraði Vela, sem er lánsmaður frá Arsenal, af stuttu færi eftir fyrirgjöf Steven Reid frá hægri kantinum. Endursýningar í sjónvarpi virtust hins vegar gefa til kynna að Vela hafi verið rangstæður. Vela kom inn á sem varamaður á 83. mínútu í kvöld og var búinn að skora aðeins fjórum mínútum síðar. Hann fékk reyndar frábært tækifæri til að tryggja sínum mönnum öll stigin er hann fékk stungusendingu inn fyrir vörn Stoke en Asmir Begovic, markvörður Stoke, sá við honum. Vela var einnig hetja West Brom gegn Wolves fyrir rúmri viku er hann kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik í leik gegn Wolves. Þá var West Brom einnig undir, 1-0, en hann skoraði jöfnunarmarkið í lok venjulegs leiktíma. West Brom er nú með 28 stig í nítjánda og næstsíðasta sæti deildarinnar. Tvö önnur lið, Wolves og West Ham, eru einnig með 28 stig en Wigan er á botninum með 27. Það er því útlit fyrir æsispennandi fallbaráttu á lokaspretti tímabilsins. Stoke er í ellefta sæti deildarinnar með 33 stig og er því aðeins fimm stigum frá fallsæti.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira