Afneitun stjórnarformanns

Fréttablaðið Fastir pennar 30. ágúst 2010 06:00
Afneitun stjórnarformanns
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:

Eftir fáeinar vikur verða tvö heil ár liðin frá falli íslenska bankakerfisins. Hrun íslenska bankakerfisins var afleiðing alþjóðlegrar fjármálakreppu. Sú kreppa dugir þó ekki ein til útskýringar á því hversu illa fór hér á landi þar sem bankakerfið hrundi nánast eins og það lagði sig. Hér koma til viðbótar þættir eins og örsmá mynt og svo gríðarlegur og hraður vöxtur íslenska bankakerfisins sem stundaði viðskipti sín um heim allan en gerði þó alltaf út frá heimahöfninni á Íslandi.

Eftir hrun hefur verið merkilegt að fylgjast með viðbrögðum þeirra sem kalla má persónur og leikendur í íslenska bankahruninu; stjórnmálamanna, forsvarsmanna eftirlitsstofnana og stjórnenda bankanna. Þar bendir hver á annan. Yfirleitt keppast menn við að afneita ábyrgð fyrir sína hönd og síns kerfis. Í besta falli viðurkenna menn að þeir hefðu (hugsanlega) getað gert einhverja hluti öðruvísi en það hafi þeir ekki séð fyrr en eftir á. Meginábyrgðin liggur þó alltaf hjá öðrum en þeim sjálfum.

Viðtalið við Sigurð Einarsson, fyrrum stjórnarformann Kaupþings, sem birtist í Fréttablaðinu á laugardag, er ekki undantekning frá þessu. Afneitun er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann við lesturinn. Sigurður leggur allt kapp á að sýna fram á að eftirlitsstofnanir brugðust í aðdraganda hrunsins. Það var þeim að kenna að bankakerfið óx og varð íslenska hagkerfinu ofviða og það var líka eftirlitsstofnunum að kenna að útlán bankanna til tengdra aðila leiddu loks til þess að engin leið var að hætta öðruvísi en að allt hryndi.

Vitanlega eru stjórnvöld þegar allt kemur til alls ábyrg fyrir því sem hægt er að gera innan ramma laga og reglna. Hitt liggur þó í augum uppi að ábyrgð þeirra sem athöfnuðu sig innan meingallaðs regluverks er ekki bara til staðar heldur veruleg. Það verður að gera þá kröfu til stjórnenda fjármálastofnana að ákvarðanir þeirra séu ábyrgar fyrir hönd hluthafa þrátt fyrir að landslög geri óábyrga ákvörðun ekki endilega ólöglega. Ætla verður að Sigurður og fleiri hafi áttað sig á því meðan darraðardansinn stóð að regluverkið hélt ekki og myndi að lokum leiða til falls bankanna.
Enn eru ekki öll kurl komin til grafar um það hvort og þá í hversu miklu umfangi lög voru brotin innan bankanna í aðdraganda bankahrunsins. Skýrsla rannsóknarnefndar bendir til að svo hafi verið og embætti sérstaks saksóknara var sérstaklega til þess stofnað að leita svara við þessari spurningu og sækja til saka þá sem taldir eru hafa brotið af sér.
Sigurður gagnrýnir skýrslu rannsóknarnefndarinnar fyrir að leggja áherslu á hlut bankakerfisins í hruninu fremur en eftirlitsstofnana og stjórnkerfis. Hann hafnar því einnig algerlega að lög hafi verið brotin í Kaupþingi. Það hlýtur að vekja þá spurningu hvort stjórnendur Kaupþings og annarra fallinna banka tóku virkilega allar ákvarðanir í þeirri trú að þær væru réttar fyrir framtíð bankans? Ef svo er þá hljóta þessir sömu menn að hafa verið verulega illa til þess fallnir að gegna þeim störfum sem þeir gegndu.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Afneitun stjórnarformanns