Lífið

Afmælistónleikar Spice Girls?

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Aðdáendur þeirra myndu gleðjast ef haldnir yrðu afmælistónleikar.
Aðdáendur þeirra myndu gleðjast ef haldnir yrðu afmælistónleikar.
Kryddpían Emma Bunton gaf í skyn í viðtali við Daily Star að Spice Girls myndu mögulega koma saman til þess að fagna tuttugu ára afmæli sínu á næsta ári, en þá kom fyrsta smáskífa þeirra, Wannabe, út.

„Ég, Geri og Mel B hittumst um daginn og vorum að ræða þetta. Okkur þykir mjög vænt hverri um aðra og elskum að koma fram saman. Þegar tímasetningin er rétt þá mun þetta gerast, núna erum við allar að einbeita okkur að okkar ferli eða fjölskyldunni.“

Spice Girls komu síðast fram á lokahátíð Ólympíuleikanna í London árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×