Viðskipti innlent

Aflaverðmæti í ágúst jókst um 7,1 prósent

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/stefán
Aflaverðmæti íslenskra skipa í ágúst var 7,1% meira en í ágúst 2013. Aflaverðmæti botnfiskafla jókst um 27% en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Á tólf mánaða tímabili frá september 2013 til ágúst 2014 dróst aflaverðmæti íslenskra skipa saman um 9,7% miðað við sama tímabil ári fyrr.

Aukning varð í verðmæti þorskafla um 9,1% og ýsuafla 4,4%, en samdráttur varð í flatfiski, skelfiski og uppsjávarafla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×