Bíó og sjónvarp

Afi þinn var klæðskiptingur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Glæsilegar - Atriðin í draggklúbbnum eru líklega hápunktur myndarinnar.
Glæsilegar - Atriðin í draggklúbbnum eru líklega hápunktur myndarinnar. MYND/SKJÁSKOT
Sumarnætur (Nuits d‘été)

Leikstjóri: Mario Fanfani

IMDB: 5,9

Sumarnætur er fyrsta bíómynd franska leikstjórans Mario Fanfani. Sumarnætur gerist í Frakklandi árið 1959 á meðan Alsírsstríðið var í fullum gangi. Michel (Guillaume de Tonquedec) er upprennandi stjórnmálamaður sem er í fullkominni sambúð, að því er virðist, við Hélèn (Jeanne Balibar).

Michel býr þó yfir leyndarmáli. Hverja helgi heldur hann í sveitasetrið Les Epicéas þar sem hann verður Mylène. Þar fær hann sína útrás ásamt gömlum vini sínum úr stríðinu, Jean-Marie (Nicolas Bouchaud), sem er dragdrottning og skemmtikraftur.

Sumarnætur fjallar á merkilegan hátt um þetta tímabil og hversu þungt það hefur verið að þurfa að fela það að vera klæðskiptingur. Myndin fjallar líka um kröfurnar sem voru gerðar til þeirrar kynslóðar karlmanna sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni, og síðan 15 árum síðar í alsírska stríðinu.

Þótt það séu mörg ljúf augnablik í myndinni þá náði hún ekki alveg að halda athyglinni í 100 mínútur, og skotin virðast stundum dálítið klunnaleg. Þar fyrir utan er þetta merkileg mynd með áhugavert umfjöllunarefni en atriðin í draggklúbbnum eru líklega hápunkturinn – þarna var menning og tónlist í gangi sem er ekki oft fjallað um og var kannski jafnvel á undan sinni samtíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×