Af hákörlum

Fréttablaðið Aðsendar greinar 30. nóvember 2011 06:00
Halldór Auðar Svansson tölvunarfræðingur.
Halldór Auðar Svansson tölvunarfræðingur.
Halldór Auðar Svansson skrifar:
Sæunn Ólafsdóttir ritaði á þessum vettvangi pistil sem bar titilinn Sniðugar nauðganir. Hann hefur vakið töluverða athygli og farið víða um netheima. Það er fyllilega eðlilegt í ljósi þess að þarna er stungið á ákveðnum kýlum sem því miður er ekki nógu oft stungið á. Höfundur pistilsins sýnir mikið hugrekki með því að opna sig með þessum hætti og vekja þannig þarfa umræðu. Ég ætla að reyna að sýna samsvarandi hugrekki með því að tjá mig um þetta málefni af hreinskilni út frá karllægu sjónarhorni.

Sæunn talar um „hákarla", sem er afar frjó samlíking. Sannleikurinn er nefnilega sá að líkt og hún bendir á, þá hálfpartinn elur samfélag okkar á hákörlum. Hákarlinn er þessi kaldi töffari sem nálgast heiminn í heild sinni, og sér í lagi konur, líkt og bráð sem þarf að veiða og sigrast á. Í sinni öfgafyllstu og ógeðfelldustu mynd er þetta nauðgari og hrotti, en sá hákarl sem er nánast samfélagslega viðurkenndur er sá sem fær útrás fyrir hákarlseðlið innan ramma laga og félagslegra viðmiða. Hann bakar sér kannski ekki endilega vinsældir allra í kjölfarið, en hann nýtur sannarlega virðingar innan ákveðinna kreðsna.

Barney Stinson úr sjónvarpsþáttunum How I Met Your Mother er til að mynda hinn erkitýpíski hákarl; maður sem notar konur eins og gólfmottur og er lafhræddur við allt sem svo mikið sem nálgast það að heita skuldbinding. Í því samhengi er reyndar mjög áhugavert að kafa aðeins ofan í persónuna og átta sig á því að forsaga hans er sú að eitt sinn var hann einstaklega ljúfur og auðsveipur maður, en í kjölfar þess að verða fyrir vonbrigðum í ástum ákvað hann að snúa blaðinu algjörlega við, herða sig upp, og skapa sér hákarlsímynd. Innst inni á hann sér þó enn sínar viðkvæmu hliðar og hefur efasemdir um gildi lífernis síns, eins og farið er yfir af þónokkurri lagni í þáttunum.

Í gegnum Barney eru þannig skoðaðar öfgar í tvær áttir. Annars vegar mjúki og væmni bangsinn sem lætur vaða algjörlega yfir sig, og hins vegar harði og svali hákarlinn sem lokar á tilfinningar sínar af ótta við að vera særður eða álitinn veikgeðja.

Það er nákvæmlega milli þessara öfga sem nútímakarlmanninum hættir til að sveiflast, og mörgum okkar líður oft eins og við séum í þessum efnum hálfpartinn milli steins og sleggju. Það er hið minnsta algjörlega víst að mér hefur sjálfum oft liðið þannig. Í mínum dekkstu stundum hef ég fyllst vonleysi yfir því finnast ég engan veginn geta uppfyllt þær kröfur sem samfélagið og konur gera til mín sem karlmanns, og meira að segja fundist það mér vera algjörlega á huldu hverjar þessar kröfur eru. Stundum hefur þetta leitt til þess að ég hef heillast af hákarlshlutverkinu, en ég hef sem betur fer aldrei fundið mig almennilega í því.

Það er auðvitað mjög í tísku að kenna „feðraveldinu" um þau samfélagslegu mein sem leiða til krísna af þessu tagi, en ég held engu að síður að í slíkum málflutningi felist sannleikskorn. Líkt og Sæunn kemur inn á tíðkast í vestrænu nútímasamfélagi ákveðin dýrkun á „strákamenningu", og það er slík menning sem ég held að einkenni feðraveldið öðru fremur.

Feðraveldið elur ekki af sér fullþroska og ábyrga karlmenn, heldur stráka í karlmannslíkömum. Strákar verða einmitt alltaf strákar en ekki karlmenn, og djúpt undir hrjúfum hákarlsskrápi stráksins sem aldrei náði að vaxa almennilega úr grasi grassera sálarmeinin, og brjótast út í sínum verstu myndum í hegðun á borð við þá sem Sæunn lýsir í pistli sínum.

Það er nokkuð til í því sem foreldrar okkar sögðu okkur margir hverjir þegar við lentum í því að vera strítt sem krakkar, að þeir sem koma illa fram við aðra gera það af því þeim líður sjálfum illa. Ég get vissulega einungis talað fyrir sjálfan mig, en fyrir utan óöryggi með kynhlutverk mitt hefur mitt helsta sálarmein í gegnum árin verið meðvirkni; mjög lúmskt og ætandi mein sem lítið sem ekkert ekkert skilur eftir andlega.

Það hjálpar ekki heldur beinlínis til að réttlætingarnar fyrir því að vera hákarl má finna afskaplega víða. Þeir sem heillast af vísindahyggju geta til að mynda fundið sig í erfðafræðihugmyndum, þar sem skipa má körlum og konum þröng hlutverk. Karlinum er til að mynda sagt eðlislægt að vilja „dreifa fræjum" sínum sem víðast, en ekki bindast neinum tilfinningaböndum, og hákarlinn sagður sú manngerð sem allar konur vilja innst inni. Þarna vill gleymast að út frá nákvæmlega sömu forsendum er alveg jafn hæglega hægt að réttlæta allt öðruvísi kynhlutverk. Ég held að í þessum efnum, sem svo mörgum öðrum, lesi fólk það út úr staðreyndum sem það vill lesa út úr þeim.

Öll erum við jú viti bornar verur og hljótum að bera ábyrgð á sjálfum okkur, okkar viðhorfum og okkar gjörðum. Fyrsta skrefið í átt að því að breyta samfélaginu er að breyta sjálfum sér, og í því hef ég unnið ötullega, og hyggst halda því áfram svo lengi sem ég lifi. Þar tek ég mér meðal annars til fyrirmyndar Barney Stinson, sem vissulega nær að þroskast og vitkast eftir því sem á þættina líður, og hrista aðeins af sér hákarlsbúninginn. Fyrirmyndirnar finnast nefnilega hér og þar, þegar að þeim er leitað. Í flóknu og á köflum firrtu nútímasamfélagi þarf bara því miður stundum að leita frekar lengi að þeim.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Má bjóða þér á stefnumót?

Sesselja Thorberg og Magnús Sævar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum. Þau fara á stefnumót...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:04

Vændi og mansal er ekki það sama

Í daglegri umræðu hefur mansali og vændi oft verið blandað svo saman að fæstir kunna skil ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:00

Sýndarveruleikinn

Hvað skiptir máli í lífinu? Nú, ég held auðvitað að þetta sé sjálf lífsgátan. Ég myndi nef...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þrenns konar veiðistjórn

Dómur Landsdóms frá 23. apríl 2012 setur ný viðmið og mörk í þjóðlífinu. Þar virðist horfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Af hverju látum við ekki útgerðarmennina sjálfa ákveða hæfilegt veiðigjald?

Útvegsmannafélagið beinir því í auglýsingum til sveitarstjórna að leggjast gegn kvótafrumv...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Við borgum ekki

Ég veit ekki nema gleymdur sé nú sífelldur áróður Suðurnesjamanna um að þáverandi umhverfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lyktarmengun kallar á tafarlausar aðgerðir

Nýverið var haldinn íbúafundur í Mosfellsbæ um lyktarmengun frá urðunarstað höfuðborgarsvæ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Um smálán

Allt frá því að smálánafyrirtæki hófu innreið sína á íslenskan lánamarkað höfum við leitað...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Gullgæsin

Eitt mesta hitamálið þessa dagana er nýjasta kvótafrumvarp ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðard...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli

Ég rakst á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni "Spilaði tölvuleik í heilt ár“....  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mannleg meindýr

Menn eru misjafnir og samskipti þeirra með ýmsu móti. Sem betur fer er meirihlutinn gott f...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Bann við mismunun

Jafnrétti er hornsteinn mannréttinda, sá grunnur sem viðhorf okkar og samfélag byggja á. A...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Af hákörlum