Formúla 1

Ætlar McLaren að yngja upp?

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Er Button með bleika hjálminn orðinn of gamall fyrir McLaren?
Er Button með bleika hjálminn orðinn of gamall fyrir McLaren? Vísir/Getty
McLaren liðið vinnur nú að þriggja til fimm ára ökumanna áætlun. Hvorugur ökumaður liðsins hefur heyrt hvort hann er inni í þeirri áætlun.

Framtíð Jenson Button og Kevin Magnussen er því enn óörugg. Samningar þeirra beggja eru til loka yfirstandandi tímabils. Ron Dennis, sem tók aftur við stjórnartaumum liðsins fyrir tímabilið vill koma á langtímaáætlun.

Button sem kom til liðsins 2010 viðurkenndi um helgina að aðstæðurnar sem hann er í væru óvenjulegar. Eric Boullier, keppnisstjóri McLaren hefur óskað þess af ökumönnum að þeir haldi ró sinni þrátt fyrir allt.

„Það er sennilega óvenjulegt að ágúst sé að ljúka og liðið hefur ekki staðfest neitt. Við erum að vinna að áætlun sem snýst um ökumenn næstu ára. Fyrir mér er mikilvægt að segja ára í fleirtölu þvi við erum að skipuleggja þrjú næstu ár og hugsanlega fimm,“ sagði Buollier.

Boullier viðurkenndi líka að liðið hefði ekki fært ökumönnum sínum nægilega góðan bíl í ár og bætti við að bæði Button og Magnussen séu að standa sig mjög vel.

Til að bæta gráu ofan á svarta óvissuna sagði Boullier að hugsanlega sé Stoffel Vandoorne, þróunarökumaður McLaren tilbúinn til að taka sæti í liðinu.

Vandoorne fékk tækifæri á æfingum á Silverstone brautinni nýlega og þótti standa sig vel. Hann vann sína fyrstu GP2 keppni og hefur síðan þá náði í þónokkuð af verðlaunum.

Hugsanlega sér McLaren aldur Buttons sem galla, hugsanlega mun liðið sparka 34 ára heimsmeistaranum frá 2009 eftir tímabilið. Það gæti þó orðið að Button fái annan nýliða sem liðsfélaga og Magnussen fái sparkið.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Ricciardo vann í Belgíu

Daniel Ricciardo á Red Bull kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum rétt í þessu. Annar var Nico Rosberg á Mercedes og þriðji Valtteri Bottas á Williams.

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Nico Rosberg á Mercedes plantaði sér á ráspól fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Lewis Hamilton var annar og Sebastian Vettel þriðji.

Bílskúrinn: Hverjum var um að kenna í Belgíu?

Belgíski kappaksturinn sem fram fór í gær var fyrir margt athyglisverður. Daniel Ricciardo vann sína þriðju keppni og Kimi Raikkonen náði sínum besta árangri á tímabilinu. Allra augu beinast þó að Mercedes þessa stundina. Hvað er að gerast þar? Verður liðið starfhæft á næstunni?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×