Ætlað samþykki

Fréttablaðið Fastir pennar 03. febrúar 2012 06:00
Ætlað samþykki
Pawel Bartoszek skrifar:
Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum nema að þeir hafi beðið um annað. Ekki ætla ég að ætla að þeim gangi annað en gott til en eitthvað er óþægilegt við það að vefir okkar renni sjálfkrafa til samfélagsins að okkur látnum. Frekar en að taka „rétta" ákvörðun fyrir alla, ætti að gera öllum auðvelt að taka rétta ákvörðun.

Íslenskir aðstandendur veita leyfi til líffæragjafar í 60% tilfella. Vonandi að þetta hlutfall hækki, og mínir aðstandendur hafa leyfi til að toga það í rétta átt ef á það kann að reyna. En hluta skýringa á því hvers vegna 40% aðstandenda neita óskum um líffæragjöf má eflaust rekja til þess að mönnum er ekki gert auðvelt að koma vilja sínum á framfæri á meðan þeir eru lifandi. Þannig þurfa fjölskyldur bráðkvaddra manna oft að taka ákvörðun sem þær hafa kannski ekki haft tíma til að melta.


Dauðaskrá
Gúgli menn „líffæragjöf" lenda þeir á síðu Landlæknis. Þar er bæklingur um líffæragjafir eyðublað fyrir svokallaða „lífsskrá"" sem er raunar dálítið öfugnefni í ljósi þess að skráin geymir aðallega óskir manna í tengslum við dauðann. Stór hluti textans er raunar þegar skrifaður. Til dæmis:

„Ef ég undirrituð/aður verð fyrir alvarlegu heilsutjóni af völdum sjúkdóma eða slysa þannig að litlar eða engar líkur eru á að ég muni aftur verða meðvituð/aður um umhverfi mitt og geta tjáð vilja minn og skoðanir á lífinu, óska ég eftir að eftirfarandi verði virt:


Ekki verði gripið til aðgerða sem beinast að því að lengja líf mitt
Ef hafnar eru aðgerðir sem beinast að því að lengja líf mitt þá verði þeim þegar hætt.[…]"
Ég sat yfir þessum orðum í vikunni en einhvern veginn fannst mér erfitt að kvitta undir þau. Kannski var það bara stíllinn. Mér fannst textinn skrifaður af einhverjum sem sæst hefði við örlög sín og biði brottfararinnar með stóískri ró. Sjálfan langar mig ekkert að vera dauður, og fannst það kannski ekki koma nægilega skýrt fram. Líklegast er rétt að menn fái að ýta á off-takkann ef engar líkur eru á því að ég komist til meðvitundar aftur, þá má nú alveg endilega halda henni gangandi þótt þær séu litlar. Kannski smámunasemi, en samt. Ég fór út af sporinu.


Partý dauðans
En segjum svo að ég hefði áttað mig á því að umrædd klausa væri í fínu lagi, og að ég hefði orðið fúll út í hana fyrir að minna mig á óumflýjanleg örlögin frekar en annað. Segjum að ég fyllti út restina á „lífsskránni" þ.m.t. ósk um að gerast líffæragjafi. Þá er næsta verk framundan: Að finna sér einn umboðsmann og tvo til vara. Svo þarf að ræða við þetta fólk. Síðan þarf tvo votta, aðra en umboðsmann eða varaumboðsmenn.

Tilraun til að gera yfirvöldum grein fyrir viljanum til að gefa líffæri krafðist sem sagt aðkomu fimm annarra einstaklinga. Hún krafðist líka þess að við félagarnir myndum svo einhvern tímann hittast og spjalla um dauðann. Frábært partý.

Komist menn heilir í gegnum þessar vangaveltur um eigið andlát þarf bara að prenta skjalið út í fjórriti, láta sexmenningana undirrita öll eintökin, senda eitt til Landlæknis, annað til heimilislæknis, láta umboðsmann geyma það þriðja og halda því fjórða sjálfur. Þá ætti vilji manna að vera nokkuð ljós.

Þetta ferli er eflaust gagnlegt og gott, en væri nú ekki einfaldara ef menn gætu bara farið á einhverja vefsíðu, skrifað inn kennitöluna og fengið bréf heim? Eða merkt við eitthvað í skattframtalinu samtímis og þeir klóra sér í hausnum yfir spurningunni um „slysatryggingu við heimilisstörf"?

Það á ekki að þurfa aðkomu fimm manna og samnings í fjórriti til að geta skuldbundið sig til að hjálpa öðru fólki. En kannski væri rétt skref að einfalda það ferli áður en menn taka ákvörðunina fyrir fólk og fara að krefjast sömu pappírsvinnu af þeim sem af einhverjum ástæðum kjósa að gefa ekki líffæri sín.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um þröngu píkuna haldið við

Ein kynlífsmýta, sem virðist ekki ætla að deyja, er sú að píkan verði víð við notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun þess árs sem ég útskrifaðist úr grunnskóla, árið 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagðar Íslendingasögur

Það var viðtal við Baltasar í Fréttatímanum þar sem hann segir frá áformum um glæpaþætti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til breytinga á fjölmiðlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óþörf styrjöld

Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri nið...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Með hækkandi sól hafa áhyggjur mínar af klæðaburði sumarsins aukist. Það er augljóst að st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandið

Þarf deilan um makrílinn að hafa áhrif á aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið? Svarið er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niður vegg

Tveir lagaprófessorar komast að þeirri niðurstöðu í álitsgerð, sem utanríkismálanefnd Alþi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikið uppi á borðinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um að senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy eða Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíðandi öfugþróun

"Okkur miðar ekki nægilega fram á við í að ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Ætlað samþykki