Innlent

Æskilegt að setja öryggisviðmið sem ferðaþjónustufyrirtæki þurfi að fara eftir

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfa sig í ævintýraferðum er ekki skylt að fara eftir neinum samræmdum reglum um öryggisatriði. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar telur mikilvægt að setja slíkar reglur. Eitt óhapp sé einu óhappi ofaukið.

Um 160 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leit að áströlskum hjónum sem urðu viðskila við vélsleðahóp á fimmtudaginn. Lagt var upp í ferðina þrátt fyrir stormviðvörun. Eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland sem sá um ferð hjónanna sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að leiðsögumenn hafi metið svo að veðrið væri því ekki til fyrirstöðu að ferðin yrði farin. Fyrirtækið gæti alltaf fyllsta öryggis.

Það hafi starfað í fleiri ár án þess að óhapp af þessu tagi hafi komið fyrir. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem slys verða á fólki sem keypt hafa þjónustu af ferðaþjónustuaðilum hér á landi. Sem dæmi má nefna nýlegt köfunarslys í Silfru á Þingvöllum en mikið óveður gerði það að verkum að lögregla og sjúkraflutningamenn þurftu að vinna við afar krefjandi afstæður.



Helga Árnadóttir
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að ekki séu til neinar samræmdar reglur um öryggi sem öll fyrirtæki í þessum geira þurfa að fara eftir.

„Ég myndi telja það æskilegt að það væru lágmarksviðmið sem að hvert einasta fyrirtæki þyrfti að fara eftir vegna þess að auðvitað er það þannig að það hefur fjölgað mjög mikið fyrirtækjum sem eru að koma inn á þennan markað eins og aðra markaði innan ferðaþjónustunnar. Það er mikið af erlendum aðilum að koma með hópa þannig að ég myndi telja það mjög aðkallandi að vera með þessi lágmarksviðmið,“ segir Helga.

Samtök ferðaþjónustunnar hafi unnið í samstarfi við stjórnvöld um gæðakerfi ferðaþjónustunnar sem heitir Vakinn en það hvílir engin lagaskylda á fyrirtækjum að fara eftir þeim reglum.

„Auðvitað fyndist manni það eðlilegt að það væri gerð krafa til þessara aðila að einhver þáttur þessara viðmiða færi fyrir hendi til að menn fengu að starfrækja afþreyingu eins og þessa. Auðvitað gengur þetta í flestum tilvikum vel en eitt atvik er einu atviki of mikið og við þurfum að læra af því og gera enn betur,“ segir Helga.


Tengdar fréttir

Hvers og eins að meta aðstæður hverju sinni

Tveggja ferðamanna var leitað við Langjökul í gær eftir vélsleðaferð. Varað hafði verið við stormi áður en haldið var af stað. Framkvæmdastjóri SAF segir hvers og eins fyrirtækis að meta aðstæður. Ferðamennirnir fundust seint í g




Fleiri fréttir

Sjá meira


×